Tónlist

Syngur í fyrsta sinn opinberlega

Tveir reyndir og vel þekktir íslenskir plötusnúðar, Ársæll Þór Ingvason, betur þekktur sem DJ IntroBeats og Natalie G Gunnarsdóttir, sem gengur undir nafninu DJ Yamaho, hafa leitt saman hesta sína og búið til lag.

Lagið ber heitið Release Me og er hægt að nálgast neðst í fréttinni.

Þetta þykja mörgum tíðindi, en Natalie syngur til að mynda í fyrsta sinn opinberlega í laginu.

„Já, þetta er í fyrsta sinn sem ég syng og gef það út. Fram að þessu hafa einungis nánir vinir og stöku fólk á karíókíbörum út í heimi heyrt mig syngja,“ segir Natalie, létt í bragði.

„En mér finnst þetta rosalega gaman - hver veit nema að ég leggi fyrir mig söng,“ segir Natalie, en hún hefur starfað sem plötusnúður í rúman áratug.

DJ Yamaho kemur til með að þeyta skífum á skemmtistaðnum Dolly við Hafnarstræti á laugardagskvöldið.

„Ég ætla að bjóða upp á mega partý og hvet sem flesta til að mæta!“ segir Natalie að lokum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.