Harmageddon

Pétur Jóhann girðir niður um sig á Miklubrautinni

Frosti Logason skrifar
Pétur Jóhann og Doddi litli áttu magnaða endurkomu á öldur ljósvakans í gær þegar þeir félagar vöktu upp hinn frábæra útvarpsþátt Ding Dong í tilefni af tuttugu ára afmæli útvarpsstöðvarinnar X-977.

Þátturinn var gríðarlega vinsæll hér á árum áður og mældist endurkoma hans vel fyrir hjá dyggum aðdáendum hans sem höfðu beðið með mikilli eftirvæntingu í tæp 9 ár eftir sameiningu þeirra félaga.

Hér að ofan má sjá klippu úr þættinum í gær þegar Pétur Jóhann skellti sér út á Miklubraut í dagskrárliðnum Honk If You Want Legs!



×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.