Kanadískt félag yfirtekur sérleyfi á Drekasvæðinu Kristján Már Unnarsson skrifar 2. maí 2013 18:45
Kanadískt olíufélag, Íþaka, er orðinn rétthafi og rekstraraðili annars af tveimur olíuleitarleyfunum á íslenska Drekasvæðinu eftir að það yfirtók breska olíufélagið Valiant. Ekki eru nema fjórir mánuðir liðnir frá því að íslensk stjórnvöld úthlutuðu tveimur fyrstu sérleyfunum til rannsókna og vinnslu olíu á Drekasvæðinu. Fulltrúi breska félagsins Valiant Petroleum tók við öðru leyfinu sem rekstraraðili, með 56,25% hlut. Íslenska félagið Kolvetni ehf., með 18,75%, og norska ríkisolíufélagið Petoro, með 25%, eru einnig aðilar að leyfinu. Nú hefur Ithaca Energy tekið yfir hlutverk Valiant sem rekstraraðili leyfisins en til þess þurfti samþykki Orkustofnunar. Kanadíska félagið gerði eigendum Valiant 36 milljarða króna yfirtökutilboð sem fallist var á og var endanlega gengið frá yfirtöku Íþöku á Valiant fyrir um tveimur vikum. Íþaka var stofnað í Alberta í Kanada árið 2004 og er skráð í kauphöllunum í Toronto og London. Meginstarfsemi félagsins felst í olíu- og gasvinnslu í Norðursjó þar sem félagið kemur að rekstri nokkurra svæða. Það stundar einnig olíuleit og olíuboranir. Íþaka telst ekki stórt í olíuheiminum en velta þess á síðasta ári nam um 20 milljörðum króna.
Mest lesið Skip úr skuggaflotanum hægði grunsamlega mikið á sér Erlent Reyndu að ræna hraðbanka Innlent Áfengissala á helgidögum þjóðkirkjunnar stöðvuð af lögreglu Innlent Rússar vara við því að hrapað sé að ályktunum áður en rannsókn lýkur Erlent Hættulega heitir dagar fleiri og mannskæðari en áður Erlent Komu hesti til bjargar úr gjótu Innlent Holtavörðuheiði enn lokuð Innlent Spáir stillu og miklu svifryki um áramótin Veður Icelandair skoðar næstu skref í þróun flugflotans Innlent Þau eru tilnefnd sem maður ársins 2024 Innlent Fleiri fréttir Holtavörðuheiði enn lokuð Reyndu að ræna hraðbanka Komu hesti til bjargar úr gjótu Icelandair skoðar næstu skref í þróun flugflotans Áfram töluverð snjóflóðahætta á Vestfjörðum Áfengissala á helgidögum þjóðkirkjunnar stöðvuð af lögreglu Snjóflóðahætta á Vestfjörðum og frumsýning Yermu Holtavörðuheiðinni lokað aftur í kvöld Sex voru fluttir með þyrlunni Gamla ríkið falt og milljónir fylgja Telja skemmdir í Bláfjöllum minniháttar Súðavíkurhlíð opin til 16 Alvarlegt bílslys í Öræfum Rólegt á aðfangadag en mikil aðsókn í viðtalstíma í desember Snjóflóð féllu á Súðavíkurhlíð Rúta rann yfir rangan vegarhelming út í móa Týndu vagni með jólamáltíðum sjúklinga á bráðamóttökunni Snjóflóð féll á Súðavíkurhlíð og rólegt í Kvennaathvarfinu Skógaskóli verður hótel Grímuskylda á Landspítalanum Búið að opna Hellisheiði og Holtavörðuheiði Strætó rann á bíl og ruslaskýli Töldu að ævilöng vesælmennska biði „barnanna á mölinni“ Jólakindin Djásn á Stokkseyri Standa vaktina á jóladag: „Þetta er bara eins og hina dagana“ Standa vaktina við lokunarpósta á jóladag Flugferðir hafnar að nýju í Keflavík Þak fauk nánast af hlöðu Fagna jólunum í Betlehem í skugga stríðs Hellisheiði og Þrengsli opna ekki fyrr en á morgun Sjá meira