Tónlist

Jaðarsystur frá LA með tónleika

Freyr Bjarnason skrifar
Hljómsveitin Bleached spilar á Harlem Bar í kvöld.
Hljómsveitin Bleached spilar á Harlem Bar í kvöld.
Bleached, sem er ein heitasta jaðarhljómsveit Los Angeles í dag og er skipuð systrunum Jennifer og Jessie Clavin, spilar á Harlem Bar í kvöld. 



Upphitun verður í höndum íslensku harðkjarnasveitarinnar Muck. Tónleikarnir hefjast klukkan 22 og fer miðasala m.a. fram á Midi.is.

Bleached spilar hrátt og hátt rokk og ról. Hljómsveitin gaf nýverið út sína fyrstu breiðskífu, Ride Your Heart. Platan hefur fengið góða dóma, þar á meðal fjórar stjörnur í  breska tónlistarritinu Mojo. Tónleikar þeirra eru þeir fyrstu á langri tónleikaferð þeirra um alla Evrópu.

Muck hefur dugleg við spilamennsku að undanförnu. Þetta eru síðustu tónleikar sveitarinnar fyrir Airwaves-hátíðina sem hefst eftir tvær vikur. Þar kemur Muck meðal annars fram á off venue-dagskrá KEX Hostels.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.