Tónlist

Dr. Spock og MacGyver eru hetjurnar

Freyr Bjarnason skrifar
Sveinn Guðmundsson hefur gefið út sína fyrstu plötu.
Sveinn Guðmundsson hefur gefið út sína fyrstu plötu.
„Góðir hlutir gerast hægt. Það er svolítið mottóið mitt. Ef ég tek hlutina rólega fríka ég ekki út,“ segir Sveinn Guðmundsson.

Hann hefur gefið út sína fyrstu plötu sem kallast Fyrir herra Spock, MacGyver og mig.

Á henni er rólyndisgítartónlist með sjálfsspeglandi textum. Spurður út í þetta óvenjulega nafn segir Sveinn einfaldlega að bæði Spock og sjónvarpspersónan MacGyver séu hetjurnar sínar. Sitthvort lagið á plötunni fjallar um þá, eða ½ Vulkan og MacGyver og ég. Titillinn er einnig tilvísun í lag Jethro Tull, For Michael Collins, Jeffrey and Me.

Sveinn er doktorsnemi í mannfræði. Hann hafði lengi langað til að gefa út plötu og hjálpaði þar til að pabbi hans gaf út þrjár plötur með hljómsveitinni Randver. Það var svo í fjölskylduafmæli þegar Sveinn spilaði lag eftir sig að félagi hans, sem var í upptökunámi, plataði hann með sér í hljóðver.

„Hann vantaði lokaverkefni og þetta passaði vel inn í námið hans. Svo sparkaði hann í rassinn á mér og ýtti mér aðeins lengra,“ segir hann og á þar við Magnús Leif Sveinsson úr hljómsveitinni Úlpu. „Ég var skíthræddur við þetta en svo fór boltinn að rúlla.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.