Fékk greitt frá félagi sem hann rannsakaði Valur Grettisson skrifar 10. október 2013 07:00 Ingibjörg Guðbjartsdóttir, forstöðumaðuri gjaldeyriseftirlits Seðlabanka Íslands, á blaðamannafundi sem blásið var til eftir að mennirnir voru handteknir. Fréttablaðið/Pjetur
Rannsakandi Fjármálaeftirlitsins fékk greitt fyrir að afla viðskipta fyrir Aserta. Forstöðumaður gjaldeyriseftirlits Seðlabanka Íslands fær ekki að bera vitni þar sem hann veitti sakborningum ráðgjöf um gjaldeyrisviðskipti. Rannsakandi hjá Fjármálaeftirlitinu fékk greiðslu frá eignarhaldsfélaginu Aserta árið 2009, á sama tíma og forsvarsmenn þess eru ákærðir fyrir að hafa nýtt félagið í meiriháttar brot á lögum um gjaldeyrisviðskipti. Þá hefur forstöðumanni gjaldeyriseftirlits Seðlabanka Íslands, Ingibjörgu Guðbjartsdóttur, verið meinað að bera vitni í málinu. Það eru þeir Gísli Reynisson, Karl Löve Jóhannsson, Markús Máni Michaelsson og Ólafur Sigmundsson sem eru ákærðir í málinu, sem var þingfest í Héraðsdómi Reykjaness síðasta vor. Þeim er gefið að sök að hafa í gegnum félagið Aserta stundað viðskipti með gjaldeyri fyrir 14,3 milljarða íslenskra króna árið 2009. Sjálfir eiga þeir að hafa hagnast um hundruð milljóna króna samanlagt á viðskiptunum.Frá þingfestingu í Héraðsdómi Reykjaness fyrir nokkrum mánuðum.. Fréttablaðið/StefánMeð broti sínu eiga þeir að hafa haft alvarleg áhrif á gengi íslensku krónunnar og tafið stýrivaxtalækkunarferli Seðlabanka Íslands. Í úrskurði Hæstaréttar Íslands, sem birtist á þriðjudaginn, kom fram að núverandi forstöðumanni gjaldeyriseftirlits Seðlabanka Íslands, Ingibjörgu Guðbjartsdóttur, væri ekki heimilt að bera vitni í málinu. Það var hún sem tilkynnti um meint brot til Fjármálaeftirlitsins eftir að hún hóf störf hjá Seðlabankanum. Ástæðan fyrir því að hún má ekki bera vitni er fyrst og fremst vegna þess að hún veitti fjórmenningunum ráðgjöf um gjaldeyrisviðskipti í tengslum við Aserta þegar hún starfaði fyrir Straum – Burðarás. Í dómi Hæstaréttar segir að trúnaðarskylda hvíldi á Ingibjörgu þegar hún veitti ráðgjöfina. Sjálf taldi hún að ráðgjöfin væri ekki hluti af störfum hennar fyrir þá félaga, heldur væri aðeins um vinargreiða að ræða. Afleiðingar þessa eru meðal annars þær að ákæruvaldinu er ekki heimilt að leggja fram 60 blaðsíður af gögnum í dómsmálinu. Búist er við að fyrirtaka í málinu fari fram innan skamms en þá munu lögfræðingar fjórmenningana leggja fram greinargerðir. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins verður kannað hvort rannsakandi Fjármálaeftirlitsins hafi brotið gróflega gegn hlutlægnisskyldu rannsakenda með því að rannsaka málið þrátt fyrir að hafa tekið við greiðslum frá félaginu á sama tíma og meint lögbrot áttu sér stað. Í dómi segir að hann hafi fengið greitt fyrir að afla viðskipta fyrir félagið. Í svari Fjármálaeftirlitsins vegna málsins segir meðal annars: „Fjármálaeftirlitið getur ekki tjáð sig um einstök mál. Almennt má þó segja að þess er gætt að aðilar sem rannsaka mál tengist þeim ekki og eru þeir spurðir út í slíkar tengingar þegar þeir hefja störf hjá stofnuninni og gert ráð fyrir að þeir upplýsi um tengingar við einstök mál sem eru til meðferðar.“ Varðandi fyrirspurn Fréttablaðsins um það hvort Fjármálaeftirlitið telji rannsakandann vanhæfan, segir í svarinu: „[…] ekki [er] um að ræða aðila sem á hluti í, er fyrirsvarsmaður fyrir eða á að öðru leyti verulegra hagsmuna að gæta er snerta aðilann.“
Mest lesið Flytur fyrirtækin vegna löggjafar um trans börn Viðskipti erlent „Það er verið að ríkisvæða húsnæðismarkaðinn“ Viðskipti innlent Leggja upp laupana í Lundúnum Viðskipti innlent „Sérkennileg“ hækkun íbúðaverðs á tímum hárra vaxta Viðskipti innlent Áföstu tapparnir stóðust ekki gæðapróf Neytendur Fasteignakaup fjárfesta vísbending um að fasteignaverð haldi áfram að hækka Viðskipti innlent Leiguverð heldur áfram að hækka Viðskipti innlent Taylor Swift talin valda verðbólgu í Bretlandi Viðskipti erlent Umferðarofsi stofnar vegfarendum í hættu Samstarf Annað tilboð borist í Skagann 3X Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Sérkennileg“ hækkun íbúðaverðs á tímum hárra vaxta Leiguverð heldur áfram að hækka „Það er verið að ríkisvæða húsnæðismarkaðinn“ Leggja upp laupana í Lundúnum Annað tilboð borist í Skagann 3X Fasteignakaup fjárfesta vísbending um að fasteignaverð haldi áfram að hækka Skúli í Subway reisir glæsihótel við Jökulsárlón Búið að bjóða í Skagann 3X Brutu samkeppnislög með ótímabærri markaðssetningu Harpa vill létta lund veðurbugaðra höfuðborgarbúa Atlanta með 600 manna flugútgerð í Sádí-Arabíu Berglind gengin í eigendahópinn Staðan ekki jafnsvört og sumir vilji meina Bjartmar ráðinn aðstoðarframkvæmdastjóri Íbúar Grafarholts geta tekið til matar síns á ný „Við erum bara að reyna að lifa af“ „Komin upp í þak“ í verðlagningu Nýir eigendur taka við Melabúðinni Festi festi kaup á Lyfju Spá aukinni verðbólgu HS Orka tryggir sér fjörutíu milljarða króna Mikil fjölgun tengifarþega en mun færri ferðast til Íslands Fleiri farþegar en minni sætanýting Mikill áhugi á þrotabúi Skagans 3X Formaður atvinnuveganefndar á hlut í félaginu sem KS keypti Landsbankinn til ráðgjafar vegna sölu Íslandsbanka KS hafi fest kaup á Kjarnafæði Norðlenska Sáraroðið frá Ísafirði notað til bjargar brenndum börnum í Afganistan Brúneggjamálið tekið fyrir í Hæstarétti Úr boltanum í tryggingarnar Sjá meira