Gagnrýni

Í fótspor stórstjarnanna

Trausti Júlíusson skrifar
Tónlist. Geir Ólafsson. I'm Talking About You. Zonet

Þó að Geir Ólafsson sé umdeildur tónlistarmaður þá er ekki annað hægt en að dást að honum. Er hann ekki dæmi um mann sem leggur allt undir til að láta drauma sína rætast? Hann eflist við mótlæti og heldur ótrauður áfram í átt að settu marki. I'm Talking About You er fimmta plata Geirs og á henni syngur hann útsetningar Dons Randi á tíu þekktum dægurlögum, m.a. Beat It, Lady In Red, Besame Mucho og Come Together. Don Randi er bandarískur píanóleikari og hljómsveitarstjóri sem hefur leikið inn á ógrynni platna. Hann var m.a. meðlimur í hinni margrómuðu sveit hljóðvershljóðfæraleikara The Wrecking Crew. Það er ákveðið afrek út af fyrir sig að hafa gert plötu með Don Randi og það má segja að Geir sé hér kominn í fótspor meistaranna.

Útsetningarnar á I'm Talking About You eru í léttpoppuðum stórsveitarstíl. Í hljómsveitinni eru þrettán blásarar, auk Randis á píanó, gítarleikara (Eddi Lár), bassaleikara, trommuleikara og slagverksleikara. Allt Íslendingar, nema trommarinn Bernie Dresel. Þá útsetur Þórir Baldursson eitt lag, titillagið sem er eftir Jóhann G. Jóhannsson, og spilar á Hammond í því.

Eins og við var að búast eru útsetningarnar á plötunni fínar og faglega unnar. Lögin eru mislangt frá sínum þekktustu útsetningum. Michael Jackson-lagið Beat It kemur t.d. mjög skemmtilega út í þessari stórsveitarútsetningu. Það sama má segja um Lady In Red (Chris de Burgh) og Bítlalagið Come Together. Það er svo sem ekkert framsækið eða frumlegt við þessa nálgun, en þetta er vel gert.

Og þá er það stóra spurningin. Söngur Geirs sjálfs. Hvernig tekst til? Geir hefur auðvitað farið töluvert fram og styrkt sig með hverri plötunni. Hann kemst ágætlega frá mörgum þessara laga. Það vantar samt oft herslumuninn. Mack the Knife er til dæmis ansi kraftlaust og hann ræður ekki alveg við Come Together. Hann gerir þetta vissulega á sinn hátt og í sumum laganna dugir það alveg en ekki í öðrum.

Á heildina litið er I'm Talking About You þokkalegasta plata. Aðdáendur Geirs ættu ekki að hika við að bæta henni í safnið.

Niðurstaða: Margt vel gert hjá Geir og félögum en sums staðar vantar herslumuninn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×