Ríkið er langstærsti jarðeigandinn Kolbeinn Óttarsson Proppé og Páll Hilmarsson skrifar 14. febrúar 2013 06:00 Hveragerðisbær er skráður eigandi 21 lögbýlis. Það segir þó lítið um landflæmið í eigu bæjarins, þar sem fjöldi þessara lögbýla er aðeins lóð undir gróðurhúsi. Lítil gögn eru til um það hvað jarðir í landinu eru stórar og aðeins lítill hluti þeirra er hnitsettur. fréttablaðið/rósa
Hver á Ísland? Þessi naíva spurning hefur æ oftar skotið upp kollinum eftir því sem umræðan um eignarhald á jörðum verður háværari. Sú umræða hefur lotið sömu lögmálum og svo margar aðrar hér á landi, einstök tilvik hafa komið upp og um skamma hríð hefur öll umræðan snúist um þau og allir haft skoðun á þeim. Nokkuð hefur þó skort á heildstæða umfjöllun um hvernig eignarhaldi á íslensku landi er háttað. Umræðan hefur þannig ráðist af ytri aðstæðum. Kanadískur auðmaður kaupir orkufyrirtæki og þá magnast upp umræðan um eignarhald á auðlindum í jörðu. Kínverskur auðmaður vill kaupa stóra jörð á Norðausturlandi og umræðan snýst um hvort útlendingar megi eiga íslenskar jarðir. Gallinn við umræðu af þessu tagi er sá að hún veltir aðeins upp einum fleti og, líkt og með svo mörg mál hér á landi, hún gleymist fljótt. Fréttablaðið ákvað að reyna að svara þessari einföldu spurningu: Hver á Ísland? Það þarf ekki að fara í grafgötur með það að umræða síðustu mánaða og ára kveikti þá spurningu. Til að gera sér grein fyrir stöðunni þarf hins vegar að kafa dýpra ofan í eignarhald á landi og þá kemur í ljós að það er ansi óljóst.6.500 lögbýli Á Íslandi voru um síðustu áramót skráð 6.449 lögbýli í lögbýlaskrá Þjóðskrár. Þessi tala hefur haldist nokkuð óbreytt undanfarin ár. Í skýrslu Bændasamtaka Íslands um eignarhald á jörðum, framleiðslu og þróun hennar, frá árinu 2006, kemur fram að það ár eru lögbýli 6.496. Sá fjöldi hafði verið nokkurn veginn óbreyttur í einn og hálfan áratug á undan, þau voru 6.469 árið 1990, en hafði þá fjölgað frá árinu 1980 þegar þau voru 6.391. Hér er hins vegar komið að fyrsta vandanum við að komast að eignarhaldi á jörðum. Öll lögbýli eru jarðir, en allar jarðir eru ekki lögbýli. Um þetta eru mismunandi skrár, lögbýla- og fasteignaskrá, og til að flækja hlutina enn frekar hafa jarðir úr þeirri síðarnefndu verið teknar saman í jarðaskrá. Nánar verður komið inn á flækjuna í skráningarmálum síðar í þessum greinaflokki, en hér er talað jöfnum höndum um jarðir og lögbýli þó átt sé við það síðarnefnda. Jarðir í fasteignaskrá eru því fleiri en lögbýlin, eða 7.607 á móti 6.449. Þegar eignarhaldið er skoðað kemur berlega í ljós að langflest lögbýli á Íslandi eru í eigu opinberra aðila. Af þessum tæplega 6.500 lögbýlum eiga þeir 619 að fullu. Þar af á ríkið stærstan hluta, eða 312. Það er þó ekki svo einfalt að svara spurningunni um hver eigi Ísland með svarinu ríkið. Það flækir málin að lögbýli eru skráð á kennitölur, sem segir ekki alla söguna. Á bak við kennitölu eignarhaldsfélags geta verið fjölmargir aðilar, innlendir sem erlendir. Ríkið er til dæmis eigandi að tuttugu jörðum í viðbót, að hluta, og svo á það jarðir, að fullu eða hluta, í gegnum ýmsa sjóði á sínum vegum. Ríkisjörðum hefur fækkað heilmikið, ríkið hefur verið að selja jarðir. Árið 1996 átti ríkið til dæmis 638 jarðir. Ríkisjörðum hefur því fækkað um helming.Meirihluti í eigu margra Í gegnum aldirnar hefur það án efa verið reglan að á bak við hverja jarðeign hafi verið einn eigandi. Sú er ekki raunin í dag. Í skriflegu svari atvinnu- og nýsköpunarráðuneytisins við fyrirspurn Ásmundar Einars Daðasonar, þingmanns Framsóknarflokksins, um eignarhald bújarða, kemur fram að tæplega 39 prósent jarða í fasteignaskrá eru með einn eiganda. Þarna kemur reyndar fram munur á skilgreiningum, eins og áður er komið inn á, fleiri jarðir eru á landinu en lögbýli. Af svarinu má hins vegar sjá að í dag er algengara að jarðir séu í eigu fleiri en eins aðila, líkt og sjá má á töflunni hér fyrir ofan. Þetta flækir málið þegar horft er til breytinga á eignarhaldi. Telst það sala á jörð þegar ættingjar kaupa hlut annars ættingja? Eða þegar eigendum að jörð fækkar úr fimm í fjóra?
Mest lesið Hjálmar segist ekki skilja hvað Einar eigi við Innlent „Maður veltir fyrir sér hver er að búa til svona sögur“ Innlent Jóhann Páll gengur í stað Ölmu Innlent Segja stefnt að því að fækka starfsmönnum úr 10.000 í 300 Erlent Verða ekki krafin um endurgreiðslu Innlent Kóngurinn ógangfær eftir að eldingum laust niður í hann Innlent Fær bætur vegna árásar grunnskólanema eftir allt saman Innlent Eiga eftir að taka afstöðu til birtingar lista yfir umsækjendur Innlent Trump beinir spjótum sínum gegn Alþjóðlega sakamáladómstólnum Erlent Fjölskylduferðin hafi ekki haft úrslitaáhrif Innlent Fleiri fréttir Ráðinn aðstoðarmaður Sigurðar Inga Tæplega 1.400 heimili og fyrirtæki urðu fyrir truflunum Fyrsta bílaapótekið á Suðurlandi Hættir sem formaður Rafiðnaðarsambandsins Jóhann Páll gengur í stað Ölmu Sáttasemjari hafi óskað eftir skrifstofustjóra Ásthildar í Karphúsið Vonar að hreinsunarstarfi ljúki að mestu í dag Vísa kjaradeilu við Sorpu til sáttasemjara vegna umboðsleysis samninganefndar Verða ekki krafin um endurgreiðslu Styrkir ekki endurgreiddir og óveðrinu slotar Veiðar höfðu áhrif á þorsksstofninn við Ísland strax á miðöldum Eiga eftir að taka afstöðu til birtingar lista yfir umsækjendur Taka upp þráðinn eftir hádegi Hjálmar segist ekki skilja hvað Einar eigi við Kóngurinn ógangfær eftir að eldingum laust niður í hann „Maður veltir fyrir sér hver er að búa til svona sögur“ Þjófur náðist eftir að hafa haft í hótunum Fær bætur vegna árásar grunnskólanema eftir allt saman „Það getur enginn unnið við að laga neitt í svona veðri“ Ráðherra segist ekki skilja hvað þau hjá borginni eru að hugsa Fjölskylduferðin hafi ekki haft úrslitaáhrif Vel yfir 10 milljónir fyrir rafmagn á mánuði hjá garðyrkjubændum Umboðsmaður vill útskýringar á svörum forsetaembættisins Makaði saur um allt á salerni fyrirtækis Skautað framhjá ýmsu í tilkynningu menntamálaráðherra „Þetta hörmulega og sorglega atvik endurspeglar langvinnan vanda“ „Mjög stórt verkefni sem við fengum í fangið“ Manndrápsmálið í Neskaupstað og meint vilyrði ráðherra Átta af ellefu umsækjendum taldir hæfir í embættið Hafna því að hafa boðið nokkra launahækkun Sjá meira