Tónlist

Krakkarnir í Oyama leggja land undir fót

Oyama gaf nýlega út EP-plötuna I Wanna.
Oyama gaf nýlega út EP-plötuna I Wanna.
Hljómsveitin Oyama, sem gaf nýlega út EP-plötuna I Wanna, leggur nú land undir fót í fyrsta sinn. Tilefnið er bransahátíðin by:larm í Ósló sem og nokkrir tónleikar í London, þar á meðal á svokölluðu Club NME-kvöldi á hinum virta tónleikastað Koko. Fyrri tónleikarnir í Ósló voru í gær en þeir síðari verða í dag. Platan I Wanna hefur fengið góðar viðtökur, meðal annars á síðunni Gogoyoko. Hljómsveitin fylgdi útgáfunni eftir með tónleikum fyrir troðfullum sal á Faktorý ásamt Tilbury og Samaris.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.