Ráðherra hitti munaðarlaus börn 18. febrúar 2013 07:30 Litlir gleðigjafar Innanríkisráðherra, forsvarsmenn ÍÆ og sendiherra Íslands á Indlandi heimsóttu barnaheimili í gær þaðan sem 160 börn hafa verið ættleidd til Íslands. Mynd/Íslensk Ættleiðing
Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra heimsótti í gær barnaheimili í Kolkata á Indlandi sem hefur átt í miklu og góðu samstarfi við Íslenska ættleiðingu (ÍÆ). Frá heimilinu hafa 160 indversk börn verið ættleidd til Íslands. Anja Roy og fjölskylda hennar reka barnaheimilið og var tekið vel á móti hinni íslensku sendinefnd í gær. Með í för voru Hörður Svavarsson, formaður ÍÆ, Kristinn Ingvarsson framkvæmdastjóri, Guðmundur Einarsson, sendiherra Íslands á Indlandi, og fleiri fulltrúar frá innanríkisráðuneytinu. Heimsóknin er liður í ferð ráðherra og fylgdarliðs hans um Asíu. Roy lýsti yfir mikilli ánægju með heimsóknina. Í vikunni verður setin ráðstefna indverskra stjórnvalda um nýjar indverskar ættleiðingarreglur. Einnig verður fundað með Ráðuneyti kvenna og barna er annast ættleiðingarmálaflokkinn á Indlandi, samkvæmt upplýsingum frá ÍÆ. Ráðherra lýsti yfir í stuttu ávarpi á barnaheimilinu að Íslendingarnir væru komnir til Indlands til að votta starfsemi þeirra virðingu lands og þjóðar og fyrir þeirra göfuga starf og farsæl samskipti í rúman aldarfjórðung við Íslenska ættleiðingu og einnig til að kanna möguleikana á að eiga áfram bein samskipti við barnaheimilið.
Mest lesið Rannsaka tengsl skotárásarinnar við annað morð Erlent Mikið álag á bráðamóttökunni á Akureyri Innlent Sex um borð í einkaþotu sem hrapaði Erlent Fimm ára dómur fyrir hnífaárás á fjölskylduföður Innlent Nauðsyn að skýra betur hvort eða hvenær læknar megi rjúfa þagnarskyldu Innlent Sex hundruð miðar á vettvangi morðsins: „Fokking hálfvita fífl bæði tvö!!!!“ Innlent Telur hagræðingaráformin þau metnaðarfyllstu Innlent „Ellibætur“ frá ríkinu eigi að heyra sögunni til Innlent Glæpir eiga ekki að borga sig: Gæti hagnast fjárhagslega á að hafa banað föður sínum Innlent Nafn unga mannsins sem lést á Vesturlandsvegi Innlent Fleiri fréttir Mikið álag á bráðamóttökunni á Akureyri Magnús Þór sjálfkjörinn Fimm ára dómur fyrir hnífaárás á fjölskylduföður Telur hagræðingaráformin þau metnaðarfyllstu Nauðsyn að skýra betur hvort eða hvenær læknar megi rjúfa þagnarskyldu Selfyssingar í 60 plús heilsueflingu klárir í jólin Skoða að koma á ferjusamgöngum milli Skotlands og Seyðisfjarðar Viðreisn gæti reynst í lykilstöðu milli blokkanna Barnavernd fylgist með fleiri ófrískum konum í neyslu en síðustu ár Fleiri óléttar konur í neyslu á borði barnaverndar og spennandi kosningar framundan Langvarandi einangrun ungrar konu gagnrýnd af Amnesty Selfoss stöðvaður í Bretlandi Þrettán nýir rafknúnir strætisvagnar teknir í notkun Zuism tekið af trúfélagaská eftir áralöng svik og pretti Mun áfram leiða lista Framsóknar í Múlaþingi Töpuðu 133 milljónum króna á kosningaári Reyndu að koma útlendingafrumvarpi að á síðustu stundu Súlunesmálið: Skoða þurfi lög er varða þagnarskyldu Samþykktu tillögu um uppbyggingu á Sorpu-lóð við Dalveg Spurningum Sigmundar Ernis svarað og málið ekki aftur í nefnd Þingstörfin á lokametrunum og styttist í jólafrí Naustin án bíla og eins og „löber“ með íslensku prjónamynstri Taka enn tuttugu þúsund króna beygju Ekið á kyrrstæðan bíl á Suðurstrandarvegi „Ellibætur“ frá ríkinu eigi að heyra sögunni til Áttu að taka tillit til þess að talsmaðurinn klikkaði Guðrún vinsælli en Agnes og traust til kirkjunnar á uppleið Glæpir eiga ekki að borga sig: Gæti hagnast fjárhagslega á að hafa banað föður sínum Björg býður ungliðum til fundar Verði húsið rifið verði fyrst að óska þess að friðun verði afnumin Sjá meira