Lífið

Ben Stiller verður með

Einn af mörgum gestaleikurum í nýju Arrested Development-þáttaröðinni.
Einn af mörgum gestaleikurum í nýju Arrested Development-þáttaröðinni.
Ben Stiller er nýjasti gestaleikarinn sem staðfest hefur verið að bregði fyrir í nýju þáttaröðinni af Arrested Development sem kemur á skjáinn í maí. Áður hafa stjörnur á borð við Kristen Wiig, Seth Rogen, Conan O’Brien, John Slattery og Islu Fisher verið tilkynntar sem hluti af þáttaröðinni og búist er við að fleiri stjörnur verði tilkynntar áður en langt um líður.

Stiller snýr aftur sem töframaðurinn Tony Wonder, erkióvinur GOB Bluth sem Will Arnett leikur, en gestaleikur hans þótti vel heppnaður í upphaflegu Arrested Development-þáttunum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.