Menning

Með augu sín á kórónu Arnaldar

Freyr Bjarnason skrifar
Glæpasagnahöfundurinn gaf út sína fjórðu bók, Rof, fyrir síðustu jól.
Glæpasagnahöfundurinn gaf út sína fjórðu bók, Rof, fyrir síðustu jól.
„Það er skemmtilegt að maður fái athygli frá svona manni eins og Barry. Það er bara jákvætt,“ segir glæpasagnahöfundurinn Ragnar Jónasson.

Barry Forshaw, einn helsti sérfræðingur Breta í norrænum glæpabókmenntum, fjallar um bækur Ragnars í heilum kafla í nýrri bók sinni, Nordic Noir: The Pocket Essential Guide to Scandinavian Crime Fiction, Film and TV, sem er að koma út í Bretlandi.

Í bók sinni fjallar Forshaw um merkustu glæpasagnahöfunda Norðurlanda. Í kaflanum um Ragnar setur hann spurningarmerki við stöðu Arnaldar Indriðasonar sem glæpasagnakóngsins á Íslandi. „Áttar Arnaldur konungur sig á hinni auknu samkeppni? Ungur og efnilegur náungi liggur í leyni og hefur auga á kórónunni. Íslendingurinn Ragnar Jónasson er að verða þekktur í Bretlandi eftir tíðar heimsóknir sínar þangað,“ skrifar hann.

Aðspurður segist Ragnar ekki vilja bera sig saman við einn eða neinn. Sjálfur sé hann hann mikill aðdáandi Arnaldar. „Maður vill bara skrifa sínar eigin bækur.“

Ragnar er á leiðinni á glæpasagnaráðstefnu í Colorado í Bandaríkjunum í næstu viku. Þar tekur hann þátt í tveimur pallborðsumræðum um hefðbundnar- og erlendar glæpasögur.

Hann hefur þýtt fjórtán glæpasögur Agöthu Christie og mun flytja erindi um þær, ásamt því að tala um eigin bækur. Hann fer á aðra glæpasagnaráðstefnu í Bristol á Englandi í sumar þar sem Agatha Christie og Arthur Conan Doyle, höfundur Sherlock Holmes, verða borin saman. „Ég mun tala máli Agöthu,“ segir Ragnar, sem hætti að þýða bækur Agöthu eftir að hann byrjaði sjálfur að skrifa.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.