Lífið

Stelpurnar ráða ríkjum um helgina

Sara McMahon skrifar
Shandi Sullivan, fyrrverandi þátttakandi í America's Next Top Model, þeytir skífum ásamt Dj Yamaho og Dj Lovísu á Volta á laugardag. fréttablaðið/vilhelm
Shandi Sullivan, fyrrverandi þátttakandi í America's Next Top Model, þeytir skífum ásamt Dj Yamaho og Dj Lovísu á Volta á laugardag. fréttablaðið/vilhelm
„Ég er í ótímabundnu fríi hér á landi. Vinir mínir hafa sagt mér að ég verði að upplifa íslenskt sumar, en við sjáum til hvort ég verð svo lengi," segir plötusnúðurinn Shandi Sullivan sem kemur fram á viðburðinum StelpuMúzík á laugardag. Íslensku plötusnúðarnir Dj Yamaho og Dj Lovísa munu einnig þeyta skífum á skemmtistaðnum Volta við Tryggvagötu 22.

Aðdáendur sjónvarpsþáttarins America's Next Top Model ættu að kannast við Sullivan því hún lenti í þriðja sæti í annarri þáttaröðinni. Téðir aðdáendur minnast þess líklega einnig að Sullivan hélt framhjá unnusta sínum við tökurnar. Hún viðurkennir að líf hennar hafi tekið miklum stakkaskiptum eftir að hún tók þátt í Top Model. „Ég hefði líklega aldrei flutt frá Kansas City til New York, ég væri líklega enn þá í Kansas hefði ég ekki tekið þátt í Top Model. New York hefur verið heimili mitt síðustu tíu ár og ég kann vel við mig þar."

Sullivan hefur þeytt skífum í hjáverkum í nokkur ár og árið 2006 spilaði hún á skemmtistaðnum Gauki á Stöng. Þrátt fyrir áralanga reynslu sem plötusnúður kveðst hún enn verða stressuð áður en hún kemur fram. „Ég verð stressuð og pínulítið sveitt í hvert einasta sinn. Yfirleitt fæ ég mér léttan göngutúr áður og þá verð ég góð. Ég ætti kannski að koma mér upp rútínu til að róa taugarnar?"

Sullivan er vön að spila transtónlist og slagara frá níunda áratugnum en hún spilar teknótónlist á laugardag. „Ég var beðin um að spila teknó og ég var til í það. Þetta verður skemmtilegt kvöld."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.