Tónlist

Fufanu á Hróarskeldu

Captain Fufanu spilar á Hróarskelduhátíðinni í sumar.
Captain Fufanu spilar á Hróarskelduhátíðinni í sumar.
Hljómsveitin Captain Fufanu, sem er skipuð Hrafnkatli Flóka Kaktusi Einarssyni og Guðlaugi Halldóri Einarssyni, kemur fram á Hróarskelduhátíðinni í Danmörku í sumar.

Sveitin bætist þar með í hóp Of Monsters And Men, Ásgeirs Trausta og Sigur Rósar sem spila einnig á hátíðinni í ár. Þetta verður í fyrsta sinn síðan 2006 sem Sigur Rós spilar á hátíðinni.

Meðal annarra flytjenda eru Rihanna, Slipknot, Queens of the Stone Age og The National. Hróarskelduhátíðin verður haldin dagana 5. til 8. júlí.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.