Tónlist

Sólþurrkuð sixtísáhrif

Eitt af því sem Hróarskeldufarar þessa árs verða sviknir um eru tónleikar með Kaliforníu-dúóinu Foxygen og líklegt að einhver hluti téðs tónlistaráhugafólks hafi rekið upp harmakvein þegar eftirfarandi fréttatilkynning barst frá bandinu í vikunni.

„Við verðum að aflýsa öllum tónleikum okkar í Evrópu í maí og júní, þar á meðal festivölum. Við biðjum aðdáendur okkar og stuðningsfólk í Evrópu afsökunar. Við vitum að þessi ákvörðun pirrar þá sem ætluðu að halda tónleikana og kaupa miða á þá. Við fullvissum ykkur þó um að þegar öllu er á botninn hvolft verður þetta til að efla þroska og heilsu hljómsveitarinnar."

Burtséð frá miður skáldlegum klifunum verðum við að vonast til að ekki sé um mjög alvarleg vandamál að ræða hjá þeim Jonathan Rado og Sam France, sem stofnuðu Foxygen sem táningar (aldurinn útskýrir kannski hroðalegt hljómsveitarnafnið) í Westlake fyrir átta árum. Fyrsta „alvöru" platan þeirra, Take The Kids Off Broadway sem kom út síðasta sumar, vakti á þeim væga athygli. Sú nýjasta, hin nokkurra vikna gamla We Are the 21st Century Ambassadors of Peace & Magic, hefur hins vegar farið eins og eldur í sinu um indíheiminn og er þess eðlis að Rás 2, Bylgjan, X-ið og FM957 gætu allar sameinast um að spila hana í drep.

Hljóðheimur Foxygen byggir að langmestu leyti á vandlega íhuguðum áhrifum frá sjöunda áratugnum (sem ætti undir venjulegum kringumstæðum að nægja til þess að fjöldinn allur af pælurum, minnugir síðari tíma Oasis, grípi til bareflis) en tvíeykinu tekst á einhvern hrífandi hátt að fá Bítla-, Kinks- og Zombies-tilvísanirnar til að ganga upp og sneiða hjá lúðaskap. Afar hressandi, svo ekki sé dýpra í árinni tekið, svona í blásumarbyrjun. Áhugasamir gætu gert margt vitlausara en að hlýða á fyrsta smáskífulagið Shuggie, hinn dáleiðandi slagara San Fransisco eða Stóns-skotna óðinn No Destruction og fjárfesta svo í gripnum, sem verður örugglega með þeim eigulegustu sem koma út árið 2013.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.