Tónlist

Emilíana mætt til Íslands með nýju plötuna

Emilíana Torrini er komin til landsins og er með eintak af væntanlegri plötu sinni í farteskinu.

Hún leit við í heimsókn til kvikmyndagerðarmannsins Gauks Úlfarssonar fyrir helgi og leyfði viðstöddum að hlýða á nýpressaðan gripinn, og á Facebook segir Gaukur að gagnrýnendur þar á bæ hafi ekki haldið vatni yfir honum – platan sé meistaraverk.

Tónlistarunnendur eru orðnir langeygir eftir nýrri plötu frá Emilíönu. Sú síðasta, Me and Armini, kom út árið 2008, hlaut einróma lof gagnrýnenda hérlendis og náði auk þess mikilli hylli í útlöndum. Hægt er að sjá myndbandið við titillag plötunnar í spilaranum hér fyrir ofan.

Hermt er að platan komi hins vegar ekki út fyrr en í haust.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.