Tónlist

Ný söngleikjadeild stofnuð

Freyr Bjarnason skrifar
Valgerður Guðnadóttir og Þór Breiðfjörð kenna söngleikjafræði.
Valgerður Guðnadóttir og Þór Breiðfjörð kenna söngleikjafræði.
„Við erum mjög spennt fyrir að koma þessu á fót hérna,“ segir söngvarinn Þór Breiðfjörð.

Söngskóli Sigurðar Demetz hefur stofnað söngleikjadeild og verður inntökupróf haldið 21. maí næstkomandi. Kennarar verða Þór, Valgerður Guðnadóttir og Jóhanna V. Þórhallsdóttir. Saman hafa þau áralanga reynslu af söng og leik á sviði bæði á Íslandi og í alþjóðlegum söngleikjum.

Í skólanum verður farið yfir söngleiki og söngleikjatengda tónlist. Teknir verða fyrir Disney-söngleikir og söngleikjamyndir, revíur og fyrir jólin verða söngleikjatengd jólalög sungin. Eftir áramót verður svo settur upp söngleikur með nemendunum.

„Íslendingar eru tónelskir en söngleikir hafa kannski ekki haft beinan fókus í þessu formi á Íslandi. Þetta er svolítið nýtt. Við erum tvö þarna, við Valgerður, og svo reynsluboltinn Jóhanna. Við erum rosalega spennt fyrir þessu og hvetjum fólk til að koma í prufuna,“ segir Þór en viðmiðunaraldur er 17 ár.

Skráning í söngleikjadeildina fer fram á songskoli@vortex.is og Rvk.is. Frekari upplýsingar verða birtar á Songskoli.is.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.