Sport

Handbolti í hjólastólum

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Jón Heiðar Gunnarsson og félagar í ÍR ætla að skella sér í hjólastólana.
Jón Heiðar Gunnarsson og félagar í ÍR ætla að skella sér í hjólastólana. Fréttablaðið/Valli
Söguleg stund verður í dag þegar fram fer fyrsta viðureign liða í hjólastólahandbolta. Hjólastólalið HK, eina liðið á landinu, mætir þá bikarmeisturum ÍR í Austurbergi klukkan 17.30.

Aðgangur að leiknum er ókeypis en tekið er við frjálsum framlögum sem renna óskipt til hjólastólakaupa. Tilgangurinn er að hvetja önnur félagslið til að taka upp samskonar starfsemi enda vantar HK-ingum sárlega andstæðinga til að spila við. Þá vilja ÍR-ingar einnig  vekja athygli á því góða frumkvöðlastarfi sem er í gangi hjá hjólastólahandboltaráði HK. Nýr keppnishjólastóll kostar 750 þúsund krónur.

Fróðlegt verður að sjá hvort hjólastólafélagið rúlli yfir ÍR-inga sem eru eðlilega óvanir að spila íþróttina í hjólastólum.



Um hjólastólahandbolta á ÍslandiStofnun Hjólastólahandboltaráðsins markaði tímamót á sínum tíma því þar fengu þeir sem sitja í hjólastól sömu stöðu innan félagsins og aðrir sem stunda íþróttir undir merkjum HK.

Þetta var gríðarlega stórt skref en fram að þessu höfðu fatlaðir starfað að mestu undir merkjum íþróttafélags fatlaðra eða fengið fyrir náð og miskunn aðstöðu fyrir áhugamál sín undir verndarvæng tilfallandi félaga.

Þetta var því stórt skref í samþættingu og valdeflingu sem lengi hefur verið unnið að í skólum landsins og því var sannarlega kominn tími á slíkt innan íþróttahreyfingarinnar. Það er gríðarstórt skref að opna íþróttafélögin fyrir öllum, líka þeim sem þurfa dags daglega að notast við hjólastól.

Nú er komið að næsta skrefi og það tekur mið að því að breiða út íþróttina hér á landi. Ofangreindur leikur er mikilvæg byrjun á því. HK-ingar eru gríðarlega þakklátir fyrir að fá eitt elsta félag landsins með sér í verkefnið. Hjólastólahandknattleiksráð HK var jú stofnað á haustdögum árið 2010 en ÍR árið 1907.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×