Tónlist

Þungarokksfræði í háskólanum

Metallica. Höfundur námsleiðarinnar þvertekur fyrir að þungarokksnámið sé léttvægt.
Metallica. Höfundur námsleiðarinnar þvertekur fyrir að þungarokksnámið sé léttvægt.
Háskólinn New College Nottingham í Englandi mun frá og með haustinu bjóða upp á kennslu í þungarokksfræðum. Námið tekur tvö ár og er hægt að nýta sem hluta af BA-gráðu frá skólanum, en talið er að námið sé það fyrsta sinnar tegundar í heiminum.

Tilvonandi nemar í þungarokksfræðum við skólann munu meðal annars læra að semja og spila þungarokkslög og einnig fræðast um sögu þungarokksins, lykilfólk innan stefnunnar og tónlistarbransann eins og hann snýr að þungarokki.

Liam Maloy, sem eyddi sjö mánuðum í að undirbúa námsleiðina, þvertekur fyrir að um léttvægt nám sé að ræða, en nokkuð hefur borið á gagnrýni þess eðlis ytra eftir að fréttir af náminu spurðust út.

„Námið er hluti af gráðu, svo það verður strangt,“ segir Maloy í viðtali við BBC. „Þungarokk hefur sjaldan verið tekið alvarlega og er oft talið skorta fræðilegan trúverðugleika þegar það er borið saman við aðrar tónlistarstefnur eins og djass og sígilda tónlist. En það er bara menningarleg túlkun.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.