Vildi gefa Kínverjunum séns Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 16. maí 2013 07:00 Guðmundur í kunnuglegri stellingu í uppgjöf á Íslandsmótinu í mars. Hann verður að óbreyttu á meðal áhorfenda á Íslandsmótinu í TBR-húsinu að ári. Mynd/Vilhelm „
Ég vildi leyfa einhverjum Kínverja að taka þetta. Gefa þeim séns. Það má ekki alltaf jarða þá,“ segir Guðmundur hlæjandi um ástæðu þess að hann gaf ekki kost á sér í tvö verkefni íslenska landsliðsins í mánuðinum. Landsliðið lauk keppni á HM í París á mánudaginn en Smáþjóðaleikarnir fara fram í Lúxemborg í lok júní. „Ég hefði viljað taka þátt í heimsmeistaramótinu en það hentaði bara ekki,“ segir Guðmundur, sem starfar hjá tengdaforeldrum sínum í Rafvörumarkaðnum í Síðumúla. Hann segir enn jafnmerkilegt að spila með landsliðinu eftir öll þessi ár. „Það er alltaf gaman að spila en ég hef klárlega gert minna af því undanfarin ár. Þegar maður er alltaf að fara í svona landsliðsverkefni þarf maður stöðugt að fá frí frá vinnu,“ segir Guðmundur. Nóg sé að nota sumarfrísdaga til þess að fara utan og spila með félagsliði sínu í Hollandi. „Það eru styttri ferðir svo ég þarf bara að nota einn sumarfrísdag í staðinn fyrir kannski tíu sem fara í landsliðsverkefnin.“Reif sig úr treyjunni Guðmundur varð hollenskur meistari með liði sínu Taverzo frá bænum Zoetermeer á dögunum. Titillinn var langþráður því Guðmundur og félagar höfðu hafnað í öðru sæti undanfarin tvö ár. Guðmundur reif sig bókstaflega úr treyju sinni þegar sigurinn var í höfn. „Maður verður að sýna tilfinningar,“ segir Guðmundur hlæjandi og bætir við að um létt grín hafi verið að ræða í bland við sigurgleði. Tímabilið í Hollandi er tvískipt að því leyti að leikin er undankeppni og úrslitakeppni bæði fyrir jól og eftir jól. Deildarmeistarar eru krýndir bæði fyrir og eftir jól. Vinni sama liðið báðar deildarkeppnirnar er liðið krýndur hollenskur meistari en ef tvö lið verða deildarmeistarar mætast liðin í hreinum úrslitaleik að vori. Guðmundur og félagar töpuðu þeim úrslitaleik síðustu tvö tímabilin en í ár stóðu þeir uppi sem sigurvegarar bæði um jólin og nú í maí. „Þetta er alveg fáránlegt kerfi,“ segir Guðmundur um fyrirkomulagið, sem er í flóknari kantinum eins og lesendur línanna hér að ofan hafa mögulega áttað sig á. „Þetta er gert til að fá fleiri alvöru leiki yfir tímabilið. Aðalleikirnir eru þessir úrslitaleikir og pælingin er ágæt. Þetta er samt afar ruglingslegt,“ segir Guðmundur. Hann bætir við að fyrirkomulaginu verði breytt í hefðbundnara form á næstu leiktíð. Guðmundur spilar ekki alla leiki Taverzo. Hann þarf að spila þrjá leiki í deildinni til að vera löglegur í úrslitakeppninni. Hann spilaði því aðeins fjóra leiki á vortímabilinu að meðtöldum úrslitaleiknum í síðustu viku. Honum stendur til boða að spila með liðinu á næsta ári en hefur ekki gert upp hug sinn.Mætir ef einhver er með stæla „Pælingin var að taka mér smá frí fyrir jól og fara að spila aftur eftir jól,“ segir Guðmundur og segist munu spila eitthvað erlendis. „Það er ekki eins og ég sé orðinn eitthvað eldgamall,“ segir íþróttamaðurinn, sem verður 31 árs í júní. Guðmundur varð Íslandsmeistari í 20. skiptið í röð í mars og vann auk þess þrefalt í sextánda skipti. Hann varð fyrst Íslandsmeistari í karlaflokki aðeins ellefu ára gamall. Á dögunum kom fram að hann ætlaði að leyfa öðrum að vinna titilinn á næsta ári. „Ég er hættur við það. Mig langaði bara í alla athyglina,“ grínast Guðmundur. Hann segir ákvörðun sína standa en segir þó hlæjandi: „Ég gæti samt alveg mætt ef einhver er með stæla.“
Íþróttir Mest lesið Hermann hættur með ÍBV Íslenski boltinn Fáránlegt hneyksli ofurhlaupara: Breyttu Wikipedia-síðum Sport Pavel: „Ég var brjálaður vísindamaður“ Körfubolti Pabbinn fékk tattú á punginn Sport Unga hjólreiðakonan látin Sport Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Körfubolti Ætlar sér að vinna heimsleikana í Crossfit Sport Átján ára hjólreiðakona í lífshættu Sport Bestu guttarnir í Bestu deild karla Íslenski boltinn Svona var kynningarfundurinn fyrir fyrir Bónus-deildirnar Körfubolti Fleiri fréttir Fram fær liðsstyrk úr Breiðholti „Þetta er dýrmætur tími og maður finnur hvað þetta skiptir mann miklu máli“ Gísli Gottskálk verðlaunaður með nýjum samningi Efast um dugnað og hugarfar Rashford Börsungar bannaðir í Belgrad vegna nasistafána Pavel: „Ég var brjálaður vísindamaður“ Tímabilið búið hjá Rodri Unga hjólreiðakonan látin Meisturunum spáð sigri í Bónus deildunum Hermann hættur með ÍBV Svona var kynningarfundurinn fyrir fyrir Bónus-deildirnar Álftanes lét Frakkann fara og samdi við Okeke Glódís mætir Arsenal, Juventus og Sædísi Segir að Xavi hafi látið Barcelona spila eins og Eibar Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Stofnandi Rafíþróttasambands Íslands í Esports Hall of Fame Fáránlegt hneyksli ofurhlaupara: Breyttu Wikipedia-síðum Dusty aftur á toppinn eftir 4. umferð Sakar andstæðing um að stela þjálfaranum sínum Bestu guttarnir í Bestu deild karla Átján ára hjólreiðakona í lífshættu Ætlar sér að vinna heimsleikana í Crossfit Pabbinn fékk tattú á punginn Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Dagskráin í dag: Körfuboltakvöld, Karólína Lea og mun meira Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Viktor Gísli öflugur gegn PSG Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn ÍBV og Grótta með sigra Sjá meira