Bíó og sjónvarp

Tökur á Sumarbörnum að hefjast

Freyr Bjarnason skrifar
Guðrún Ragnarsdóttir leikstýrir nýrri fjölskyldumynd um silungapoll.
Guðrún Ragnarsdóttir leikstýrir nýrri fjölskyldumynd um silungapoll.
Tökur eiga að hefjast í sumar á fjölskyldumynd sem ber vinnuheitið Sumarbörn. Myndin er komin langt í undirbúningi og hefur þegar fengið framleiðslustyrk frá Kvikmyndasjóði Íslands upp á níutíu milljónir króna. Frumsýning verður líklega á næsta ári. Handritið er byggt á atvikum sem áttu sér stað á barnaheimilinu Silungapolli sem Reykjavík starfrækti hér árum áður. „Þessi mynd er búin að vera rosalega lengi í gangi. Það eru tíu ár síðan fyrsti handritastyrkurinn kom í þetta verkefni,“ segir leikstjórinn Guðrún Ragnarsdóttir.

Myndin gekk áður undir vinnuheitinu Silungapollur en ákveðið var að breyta því. „Barnaheimilið var lagt niður í kringum 1960 og þá var þetta meðferðarheimili í mörg ár. Það er mikið af fólki sem þekkir ekki Silungapoll öðruvísi.“ Aðalleikararnir eru börn en umfjöllunarefnið er á alvarlegri nótunum. Fréttablaðið greindi frá því í gær að barnamyndin Algjör Sveppi 4 hefði ekki fengið styrk í ár og verði því ekki framleidd. Í reglugerð Kvikmyndasjóðs Íslands er stefnt að því að barna- eða fjölskyldumyndir verði framleiddar að minnsta kosti annað hvert ár og fellur Sumarbörn því í þann flokk.

„Krökkunum finnst mjög gaman að þessum Sveppamyndum en það er kannski allt í lagi að þau bíði einu sinni,“ segir Guðrún.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×