Menning

Glaður og þakklátur með verðlaunin

Kristjana Arnarsdóttir skrifar
Rithöfundurinn Þorgrímur Þráinsson var útnefndur borgarlistamaður Reykjavíkur í gær.Hér ásamt Einari Erni Benediktssyni og Jóni Gnarr.
Rithöfundurinn Þorgrímur Þráinsson var útnefndur borgarlistamaður Reykjavíkur í gær.Hér ásamt Einari Erni Benediktssyni og Jóni Gnarr. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
„Þetta er mikill heiður og er gríðarlega skemmtilegt,“ segir rithöfundurinn Þorgrímur Þráinsson, borgarlistamaður Reykjavíkur árið 2013.

Í gær útnefndi Jón Gnarr borgarstjóri Þorgrím borgarlistamann Reykjavíkur, en athöfnin fór fram í Höfða. Það var Einar Örn Benediktsson, formaður menningar- og ferðamálaráðs, sem greindi frá valinu.

Útnefning borgarlistamanns er heiðursviðurkenning sem gefin er reykvískum listamanni sem með listsköpun sinni hefur skarað fram úr á sviði menningar og lista.

Þorgrímur Þráinsson er einn af afkastamestu og vinsælustu barna- og unglingabókahöfundum landsins og hefur átta sinnum hlotið verðlaun fyrir bækur sínar.

Þorgrímur hefur unnið að því að efla bókmenntaáhuga ungs fólks á Íslandi og hefur síðustu tvo vetur haldið fyrirlestra í grunnskólum landsins undir heitinu Láttu drauminn rætast.

„Mér finnst í raun menningarnefnd Reykjavíkurborgar sýna ákveðið hugrekki í að velja barna- og unglingabókahöfund sem borgarlistamann Reykvíkinga. Við vitum hvernig þetta er þegar það kemur að menningu og listum, þeir sem sinna börnum og unglingum eru ekki endilega alltaf fremstir í flokki. En ég er bara mjög glaður og þakklátur,“ segir Þorgrímur.

Verðlaunin tileinkaði Þorgrímur tveimur mönnum sem að hans sögn höfðu töluverð áhrif á hann, þeim Hemma Gunn heitnum og fyrrverandi aðalritstjóra Fróða og Frjáls framtaks, Steinari J. Lúðvíkssyni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.