Menning

Úthlutar ferðastyrkjum til tónlistarfólks í hverjum mánuði

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Sigtryggur Baldursson segir nýtt met hafa verið slegið í tónleikahaldi Íslendinga erlendis í mars með tvö hundruð og tvennum tónleikum.
Sigtryggur Baldursson segir nýtt met hafa verið slegið í tónleikahaldi Íslendinga erlendis í mars með tvö hundruð og tvennum tónleikum. Fréttablaðið/Arnþór
„Það er afar gott mál að hafa þennan sjóð,“ segir Sigtryggur Baldursson, stjórnarmaður í Útflutningssjóði íslenskrar tónlistar, sem úthlutaði ferðastyrkjum í þriðja sinn í vikunni. Sjóðurinn er á vegum menntamálaráðuneytisins og hlutverk hans er að auka möguleika íslensks tónlistarfólks á velgengni erlendis. Fyrsta úthlutun úr honum var í maí í vor.

„Þetta er lítill sjóður,“ segir Sigtryggur, „en er hugsaður til að geta brugðist fljótt og örugglega við, því margt fólk í tónlistarbransanum er að fara út með stuttum fyrirvara. Hann veitir líka styrki til markaðsverkefna fjórum sinnum á ári.“

Í stjórn sjóðsins eru auk Sigtryggs þær Kamilla Ingibergsdóttir og Ragnhildur Gísladóttir, sem er formaður. „Það berast margar umsóknir og við reynum að skoða þær á faglegum grundvelli. Það eru allt verðug verkefni en því miður er ekki hægt að veita öllum styrki,“ segir Sigtryggur og upplýsir að nýtt met hafi verið sett í tónleikahaldi Íslendinga í vor. „Það voru 202 tónleikar með íslenskum flytjendum erlendis í mánuðinum mars og 187 í apríl. Þetta eru ótrúlegar tölur.“

Útflutningssjóður íslenskrar tónlistar er einn angi fjárfestinga í skapandi greinum sem fyrri ríkisstjórn kom á, að sögn Sigtryggs. „Sjóðurinn er þeirrar náttúru að hann úthlutar ferðastyrkjum mánaðarlega. Það eru svolítil læti í honum. Hann mætti alveg vera stærri því hann skapar mikil verðmæti og afleidd störf.“

Verkefni sem fengu ferðastyrk í júlí:

Alexandra Chernyshova. Nútímaópera hjá New York Center for Contemporary Opera.

Myrra Rós. Tónleikaferðalag í Eistlandi.

Lord Pusswhip, Two Step Horror, Captain Fufanu og AMFJ. Tónleikar í New York á The Knitting Factory og Goodbye Blue Monday.

Dikta. Tónleikahald og upptökur í Þýskalandi.

Skálmöld. Tónleikaferðalag í Evrópu.

Ung Nordisk Music. Kynning á nýrri klassískri íslenskri tónlist í miðstöð nýrrar tónlistar og hljóðlistar í Osló.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.