Menning

Mörg þúsund eintök af bók Eggerts pöntuð til Bandaríkjanna

Sara McMahon skrifar
Kristján B. Jónasson, útgefandi hjá Crymogea, segir þetta opna margar dyr fyrir útgáfuna og listamanninn.
Kristján B. Jónasson, útgefandi hjá Crymogea, segir þetta opna margar dyr fyrir útgáfuna og listamanninn. Fréttablaðið/stefán
„Við höfum selt bækur í Bandaríkjunum í bráðum fjögur ár og erum með alþjóðlega dreifingu á bókum, meðal annars í Evrópu, Bandaríkjunum og Asíu. Dreifingaraðlili okkar í Bandaríkjunum einbeitir sér að dreifingu listaverka-, hönnunar- og ljósmyndabókum og hann sá um að loka þessum samningi,“ segir Kristján B. Jónasson, útgefandi hjá Crymogea. Bókin Paintings, með verkum listamannsins Eggerts Péturssonar, sem Crymogea gaf út í lok síðasta árs, verður brátt til sölu í bandarísku lífstílsverslunarkeðjunni Anthropologie.

Að sögn Kristjáns eru aðeins fáar bækur valdar til sölu í verslunum Anthropology ár hvert. Allt núverandi upplag bókarinnar verður sent til sölu í Anthropology, ef frá er talin harðspjaldaútgáfa sem prentuð var sérstaklega fyrir innlendan markað, þó hefur eftirspurninni ekki verið annað.

„Við getum ekki uppfyllt alla pöntunina. Þeir hafa beðið um mörg þúsund bækur, sem við eigum ekki til. Við eigum eitthvað um fimmhundruð bækur sem við sendum út núna,“ útskýrir Kristján. Hver bók verður seld á um 100 dollara, eða því sem samsvarar um 12 þúsund íslenskar krónur.

Nær til stærri hóps

Aðspurður segir Kristján þetta koma sér vel bæði fyrir útgáfuna og listamanninn sjálfan. „Anthropology er alltaf að leita að bókum og við erum með nokkra titla sem við erum að þróa á ensku. Það skiptir okkur miklu máli að vera komin í samband við aðila sem er kannski að kaupa bækur í um þúsund eintökum,“ segir Kristján og bætir við: „Eggert er lítið þekktur í Bandaríkjunum en þetta gæti breytt því enda fer bókin í mikla dreifingu og nær þannig til hóps sem hefði annars ekki kynnst hans verkum,“ segir hann að lokum.



Reka 175 verslanir

Fyrsta Anthropology verslunin var stofnuð í Wayne í Pennsylvaníu árið 1992. Keðjan er í eigu fyrirtækisins UOI, þeirra sömu og eiga Urban Outfitters.

Fyrirtækið hefur dafnað hratt á síðustu árum og rekur nú 175 verslanir víða í Bandaríkjunum.  Hugmyndin að baki verslananna er að þar geti viðskiptavinurinn verslað fatnað, fylgihluti, gjafavöru og húsgögn í einni og sömu versluninni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.