Tónlist

Spiluðu Bítlalög fyrir Vigdísi

Freyr Bjarnason skrifar
Tómas M. Tómasson og félagar spiluðu óvænt fyrir Vigdísi Finnbogadóttur.
Tómas M. Tómasson og félagar spiluðu óvænt fyrir Vigdísi Finnbogadóttur. fréttablaðið/Gva
„Þetta var gaman en svolítið sérstakt,“ segir Stuðmaðurinn Tómas M. Tómasson.

Afbrigði hljómsveitar hans Bítladrengirnir blíðu spilaði á skemmtistaðnum Café Rosenberg á miðvikudagskvöld. Einn gestanna var frú Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands.

„Við Magnús Einarsson, Eðvarð Lárusson og Karl Pétur Smith vorum að hita upp fyrir Jeremy Quentin, sem kallar sig Small Houses, sem var að spila þarna. Hún kom þarna inn og hélt að það væru aðrir tónleikar. Ég sá að hún gaf sig á tal við strákana og ætlaði að hlusta á nokkur lög. Svo var hún eiginlega bara allt kvöldið,“ segir Tómas. „Það var afskaplega gaman að hitta Vigdísi.“

Þeir félagar spiluðu alls kyns lög, meðal annars með Bítlunum og Rolling Stones. „Við spiluðum í tæpan klukkutíma og svo byrjaði Bandaríkjamaðurinn. Hún hlustaði á hann líka og sagðist hafa skemmt sér mjög vel.“








Fleiri fréttir

Sjá meira


×