Tónlist

David Bowie stelur senunni!

Ólöf Skaftadóttir skrifar
Nýja plata David Bowie slær í gegn.
Nýja plata David Bowie slær í gegn. Mynd:Getty
David Bowie hlaut flestar tilnefningar Q-verðlaunanna í ár. Hann hlaut tilnefningu í sex flokkum af átta, fyrir besta lagið, besta myndbandið, besta tónlistarmanninn, bestu plötuna og besta atriðið.

Bowie hefur ekki gefið út plötu í hartnær áratug, en gaf út plötuna The Next Day í janúar síðastliðnum við gríðarlega góðar undirtektir.

Franska tvíeykið Daft Punk er tilnefnt í þremur flokkum og sömu sögu er að segja af hljómsveitinni Arctic Monkeys.

Fáar konur eru tilnefndar í ár en poppstjarnan Ellie Goulding er þó tilnefnd til tveggja verðlauna.

Valerie June og Laura Mvula hlutu einnig sitthvora tilnefninguna.

Grínistinn Al Murray er kynnir verðlaunanna í ár, líkt og síðustu fjögur ár. 

Hér er lagið Valentine's day af nýrri plötu Bowies.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.