Tónlist

Biophilia-tónleikar fá fjórar stjörnur

Björk fær góða dóma í The Independent.
Björk fær góða dóma í The Independent.
Enska blaðið The Independent gefur tónleikum Bjarkar Guðmundsdóttur á hinum virta tónleikastað Alexandra Palace í London fjórar stjörnur af fimm mögulegum.

Þetta voru síðustu tónleikar Bjarkar á Biophilia-tónleikaferð hennar um Bretland.

„Björk flutti þetta þemaverk sitt á fallegan og skringilegan hátt með neon-skýjahárkollu á höfðinu og í kjól sem virtist vera gerður úr ull,“ skrifaði greinarhöfundur og bætti við að lokahnykkur lagsins Crystalline hafi verið eftirminnilegur og að tónleikasviðið hafi breyst í ofursvalt partí í ætt við þau sem ferðmenn í Reykjavík gætu lent í ef þeir skella sér út á lífið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.