Bíó og sjónvarp

Tökum á Interstellar er lokið

Freyr Bjarnason skrifar
Stjörnurnar úr Interstellar, þar á meðal Matt Damon, skemmtu sér á Lebowski-bar eftir að tökum lauk á myndinni.
Stjörnurnar úr Interstellar, þar á meðal Matt Damon, skemmtu sér á Lebowski-bar eftir að tökum lauk á myndinni. nordicphotos/Getty
Tökum er lokið hér á landi á kvikmyndinni Interstellar í leikstjórn Christophers Nolan. Þær stóðu yfir í um það bil tvær vikur og fóru fram á Kirkjubæjarklaustri.

Matt Damon, Matthew McConaughey, Anne Hathaway og fleiri stjörnur myndarinnar eru því farnar af landi brott.

Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins skemmtu leikararnir og aðrir úr tökuliði myndarinnar sér á skemmtistaðnum Lebowski-bar við Laugaveg síðastliðið föstudagskvöld, skömmu áður en þeir kvöddu Ísland og flugu heim.

Áætlað er að Interstellar verði frumsýnd í nóvember á næsta ári. Hún er byggð á handriti Nolans og bróður hans Jonathans og fjallar um ormagöng og tímaferðalanga.

Mikil eftirvænting ríkir eftir þessu næsta verkefni Christophers Nolan, sem er þekktastur fyrir Batman-þríleik sinn. Á meðal fleiri mynda hans eru Inception, The Prestige og Memento. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.