Tónlist

Aldrei stærri utandagskrá

Sara McMahon skrifar
Kamilla Ingibergsdóttir, kynningastjóri Iceland Airwaves, segir utandagskrárliði hátíðarinnar fjölbreytta og skemmtilega.
Kamilla Ingibergsdóttir, kynningastjóri Iceland Airwaves, segir utandagskrárliði hátíðarinnar fjölbreytta og skemmtilega. Mynd/Úr einkasafni
Senn líður að því að tónleikahátíðin Iceland Airwaves bresti á. Skipuleggjendur hátíðarinnar sendu frá sér tilkynningu um utandagskrárliði hátíðarinnar í gær, en þeir hafa aldrei verið fleiri en í ár.

Alls fara fram 624 tónleikar á 48 tónleikastöðum víðs vegar um borgina. Utandagskrárliðirnir eru öllum að kostnaðarlausu og fara meðal annars fram í verslunum, á veitingastöðum, öldurhúsum, hótelum, söfnum og á bát.

„Undiraldan og 12 Tónar standa fyrir tónleikum á eikarbátnum Lunda. Það ræðst síðan eftir veðri hvort tónleikarnir fara fram inni í bátnum eða á dekkinu. Þetta er bara eitt lítið og skemmtilegt dæmi úr risavaxinni dagskrá. Ég held að allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi,“ segir Kamilla Ingibergsdóttir, kynningastjóri Iceland Airwaves.

Ieland Airwaves fer fram dagana 30. október til 3. nóvember.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.