Tónlist

Skrifuðu niður lítrafjöldann

Björgvin Sigurðsson (til vinstri) og Snæbjörn Ragnarsson á tónleikaferðalaginu um Evrópu.
Björgvin Sigurðsson (til vinstri) og Snæbjörn Ragnarsson á tónleikaferðalaginu um Evrópu.
„Þetta var geðveikt en svolítið strembið,“ segir Snæbjörn Ragnarsson, liðsmaður Skálmaldar.

Þungarokkararnir eru nýkomnir heim af sex vikna tónleikaferðalagi um Evrópu með hljómsveitunum Finntroll og Tý. Þetta var stærsta tónleikaferð Skálmaldar til þessa.

Eins og Fréttablaðið greindi frá tók hljómsveitin með sér pissuflöskur til að nota í rútunni á meðan á ferðalaginu stóð og komu þær að góðum notum. „Það var pissað í lifandi ósköp margar flöskur. Við tókum saman lítrafjöldann hjá hverjum og einum og skrifuðum á bloggsíðuna okkar,“ segir Snæbjörn og á þar við Skalmold.wordpress.com.

Aðspurður segir hann skemmtilegast hafa verið að spila í Frakklandi og í Austur-Evrópu. „Það kom mér á óvart að bestu áhorfendurnir virtust vera í Frakklandi. Maður hefur þá tilfinningu fyrir Frökkum að þeir séu aðeins til baka og kannski góðir með sig en það var alls ekki þarna.

Að spila í Rúmeníu var líka alveg sturlað. Maður finnur að maður er kominn aðeins frá vestrænu menningunni. Allt verður blóðheitara og menn sleppa sér frekar því það eru færri hljómsveitir sem leggja leið sína svona langt austur.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.