Leikjavísir

Ætla alls ekki í jólaköttinn

Salka, Katla, Marteinn, Júlíana, Alex, Hekla og Mira eru hressir krakkar sem hlakka til jólanna.
Salka, Katla, Marteinn, Júlíana, Alex, Hekla og Mira eru hressir krakkar sem hlakka til jólanna. Mynd/Pjetur
Marteinn Elí Brynjólfsson ellefu ára og Salka Gústafsdóttir tíu ára eru löngu farin að hlakka til jólanna. Þau eru í hópi sjö krakka sem stjórna Vasaljósi, sjónvarpsþætti fyrir krakka á RÚV þar sem fjallað er um ýmislegt sem krakkar hafa fyrir stafni og finnst skemmtilegt. Laugardaginn 28. desember verður jólaþáttur Vasaljóss á dagskrá og við hittum krakkana þegar þeir voru að undirbúa þáttinn.

Er eitthvað ómissandi á jólunum?



M: Möndlugrauturinn og fjölskyldusamveran.

Ég hef fengið möndluna og möndlugjafirnar eru

oftast spil eða bækur

S: Jólagleðin, skreytingarnar og stemningin í

bænum.

Eruð þið búin að kaupa jólagjafir?



M: Nei, ég er ekki búinn að ákveða hvað ég ætla

að gefa öllum í jólagjöf

S: Ekki ég heldur, ekki alveg öllum.

M: Ég bjó til jólagjafir í skólanum þegar ég var

yngri en nú er það alveg búið.

S: Ég bjó til jólagjöf handa ömmu í skólanum

og held að ég búi líka til gjöfina handa pabba og

mömmu. Ætla ekki að segja hvað það er.

Hvað langar ykkur að fá í jólagjöf?



M: Mig langar í Playstation 3, einhverja skemmtilega bók og fótboltabúning.

S: Ég veit ekkert hvað mig langar að fá í jólagjöf,

ég vil eiginlega helst láta koma mér á óvart.

Farið þið í jólaköttinn?



M: Nei, ég er búinn að fá jólafötin. Ég fékk buxur

og skyrtu og ég valdi það sjálfur. Mamma valdi

einu sinni fötin mín en núna vel ég alltaf sjálfur

það sem mér finnst flott.

S: Pabbi fór til útlanda í haust og keypti handa

mér jólakjól. Svo fæ ég líka oft föt í jólagjöf.

Hvernig finnst ykkur aðfangadagur?



M: Mjög skemmtilegur og þægilegur. Ég hef

það oftast rólegt og slaka á. Við lesum jólakortin,

horfum stundum á einhverja jólamynd og bíðum

eftir kvöldinu.

S: Ég dreifi jólagjöfum á vini og fjölskyldu og hef

það rólegt fyrir kvöldið.

Er aðfangadagur lengsti dagur ársins?



Bæði: Já!








×