Menning

Mozart við kertaljós

Syngja inn jólin Kammerhópurinn Camerarctica flytur tónlist Mozarts í kirkjum fyrir hátíðirnar.
Syngja inn jólin Kammerhópurinn Camerarctica flytur tónlist Mozarts í kirkjum fyrir hátíðirnar.
Kammerhópurinn Camerarctica heldur sína árlegu kertaljósatónleika í kirkjum nú rétt fyrir jólin en hópurinn hefur leikið ljúfa tónlist eftir Mozart við kertaljós í tuttugu ár.



Í ár verða leikin eftirfarandi verk eftir Wolfgang Amadeus Mozart: Divertimento kv.136 fyrir strengi Klarinettukvartett kv.378 og Klarinettukvintettþáttur kv.516c tvær aríur þ.e Laudate Dominum kv.339 og Parto Parto úr La Clemenza di Tito. Að venju lýkur tónleikunum á því að Camerarctica leikur jólasálminn góða Í dag er glatt í döprum hjörtum, sem er úr Töfraflautunni eftir Mozart.



Hópinn skipa að þessu sinni þau Ármann Helgason klarinettuleikari, Gunnhildur Daðadóttir og Rannveig Marta Sarc fiðluleikarar, Svava Bernharðsdóttir víóluleikari og Sigurður Halldórsson sellóleikari en gestur á tónleikunum er Ingibjörg Guðjónsdóttir söngkona. Einnig koma fram tveir drengir úr Drengjakór Reykjavíkur, þeir Benedikt Gylfason og Tryggvi Pétur Ármannsson.



Tónleikarnir verða sem hér segir: Í Hafnarfjarðarkirkju fimmtudagsdagskvöldið 19. desember, Kópavogskirkju föstudagsdagskvöldið 20. desember, Garðakirkju laugardagskvöldið 21. desember og loks í Dómkirkjunni í Reykjavík sunnudagskvöldið 22. desember. Þeir hefjast allir klukkan 21.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.