Fótbolti

Skoruðu þrisvar gegn Real á 28 mínútum

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Upp úr sauð í síðari leiknum á Bernabeu.
Upp úr sauð í síðari leiknum á Bernabeu. Nordicphotos/Getty
Það eru líklega fáir sem hafa trú á endurkomu Galatasaray gegn Real Madrid í átta liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu.

Real vann sannfærandi 3-0 sigur í fyrri leik liðanna í Madrid en liðin mætast í Istanbúl í kvöld. Galatasaray þarf að skora að minnsta kosti þrisvar og hefur til þess rúmlega níutíu mínútur.

Tyrkneska liðið á þó fínar minningar frá viðureign liðanna á Ali Sami Yen leikvanginum í Istanbúl árið 2001. Þá mættust liðin einmitt í átta liða úrslitum nema fyrri leikurinn fór fram í Tyrklandi.

Þáverandi Evrópumeistarar léku sér að tyrkneska liðinu í fyrri hálfleik. Ivan Helguera skallaði aukaspyrnu Luis Figo í netið á 33. mínútu og Claude Makelele skoraði sjaldséð mark á markamínútunni með skoti framhjá Brasilíumanninum Claudio Taffarel í markinu. Þegar gengið var til búningsherbergja virtust öll sund lokuð fyrir Tyrkina.

Hasan Sas, Claudio Taffarel, Gheorghe Hagi, Mario Jardel og félagar.Nordicphotos/Getty
„Þetta var líklega besti hálfleikur ferils míns," segir Mircea Lucescu, þáverandi stjóri Galatasaray, um síðari hálfleikinn. Rúmeninn, sem í dag stýrir Shaktar Donetsk, fór vel yfir málin með sínum mönnum í leikhléi og úr varð eftirminnilegur síðari hálfleikur.

Eftir tveggja mínútna leik í síðari hálfleik braut Makelele á Hasan Sas innan vítateigs og Umit skoraði úr spyrnunni. Tyrkirnir, með arkitektinn Gheorghe Hagi í broddi fylkingar, voru komnir með blóð á tennurnar.

Hasan Sas var sjálfur á ferðinni á 66. mínútu með fínu skoti eftir undirbúning Faith Akyel. Lyktin af sigri Galatasaray, því sem virtist fjarlægur draumur tuttugu mínútum fyrr, var allt í einu orðin mjög sterk.

Ivan Helguera reyndist Tyrkjunum erfiður. Hann skoraði í báðum leikjunum.Nordicphotos/Getty
Fatih nýtti sér varnarmistök hjá Real á vinstri vængnum. Tyrkinn sendi fyrir markið á Portúgalann og farandverkamanninn Mario Jardel sem stangaði boltann í hornið. Tyrkirnir voru nær því að bæta við mörkum en Real að jafna metin og frækinn sigur Galatasaray var í höfn.

Myndband af leiknum eftirminnilega og viðtöl við leikmenn og þjálfara má sjá á heimasíðu UEFA, smellið hér. Real Madrid tókst þó að hafa sigur í seinni leiknum á sínum nautsterka heimavelli með kunnuglegum lokatölum, 3-0.

Leikur Galatasaray og Real Madrid er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 3 í kvöld. Leikurinn hefst klukkan 18.45 en Meistaradeildarmörkin 45 mínútum fyrr á Stöð 2 Sport.

Mörkin úr fyrri leik liðanna á Bernabeu má sjá hér.

Sportið á Vísi er á Facebook. Fylgstu með.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×