Innlent

Ekki kynferðisbrot ef tilgangur var að meiða

komið fyrir dóm Árásin átti upptök sín í ósætti Andreu Unnarsdóttur og brotaþolans. Dómur yfir Andreu var þyngdur í Hæstarétti. fréttablaðið/anton
komið fyrir dóm Árásin átti upptök sín í ósætti Andreu Unnarsdóttur og brotaþolans. Dómur yfir Andreu var þyngdur í Hæstarétti. fréttablaðið/anton
Fjórir dómarar við Hæstarétt komust að þeirri niðurstöðu að sú háttsemi að stinga fingri inn í leggöng og endaþarm konu væri ekki kynferðisbrot. Ástæðan er sú að ásetningur hafi aðeins verið að meiða fórnarlambið. Það teljist því líkamsárás.

Dómurinn féll fyrr í vikunni í líkamsárásarmáli gegn þeim Andreu Unnarsdóttur, Jóni Ólafssyni, Elíasi Valdimar Jónssyni, Óttari Gunnarssyni og tveimur öðrum. Þau þrjú fyrstu voru sakfelld fyrir kynferðisbrot í héraðsdómi en neituðu öll að hafa beitt slíku ofbeldi.

Hæstaréttardómararnir Markús Sigurbjörnsson, Árni Kolbeinsson, Gunnlaugur Claessen og Ólafur Börkur Þorvaldsson komust að þessari niðurstöðu. Fimmti hæstaréttardómarinn, Ingibjörg Benediktsdóttir, skilaði sératkvæði og er ósammála þessari túlkun hinna dómaranna.

„Með þessum verknaði beitti hann brotaþola grófu kynferðislegu ofbeldi og braut þannig freklega gegn kynfrelsi hennar. Er fallist á með ákæruvaldinu að þessi háttsemi hafi verið af kynferðislegum toga og afar niðurlægjandi fyrir brotaþola. Skiptir ekki máli hvort tilgangur ákærða hafi verið einhver annar en að veita sér kynferðislega fullnægju, enda nægir að verknaður sé almennt til þess fallinn.“

Ingibjörg bendir á þrjá dóma máli sínu til stuðnings, meðal annars hæstaréttardóm þar sem maður var sakfelldur fyrir nauðgun, fyrir að hafa stungið fingrum í endaþarm konu sem hafði þvaglát á Austurvelli.

Hulda Elsa Björgvinsdóttir saksóknari sagði í samtali við Rúv í gær að með þessum dómi væri stigið skref aftur á bak þar sem horfið væri frá því að tryggja kynfrelsi brotaþola. Þrátt fyrir að refsiramminn væri sá sami skipti dómurinn máli vegna fordæmis.

„Við teljum að þarna sé í raun og veru fráhvarf frá því sem ætlun löggjafans var, að tryggja kynfrelsi brotaþola og leggja áherslu á verknaðinn, ekki hvaða hvatir liggja að baki.“ - þeb




Fleiri fréttir

Sjá meira


×