Sport

Armstrong stendur í málaferlum við bandarísku póstþjónustuna

Stefán Árni Pálsson skrifar
Hjólreiðakappinn Lance Armstrong biðlaði til dómara í Bandaríkjunum að vísa frá kæru sem bandaríska póstþjónustan, US Postal Service, hefur birt honum eftir að í ljós kom að Amstrong hafði notað ólögleg lyf á ferli sínum sem hjólreiðamaður.

Lance Amstrong var hluti af liði sem var styrkt af US Postal Service og telja forráðamenn fyrirtækisins að hann hafi skaðað ímynd þess en Amstrong vann erfiðasta hjólreiðamót hvers árs Tour de France sjö sinnum eða frá árunum 1999-2005.

Hann viðurkenndi í janúar á þessu ári að hafa neytt ólöglegra lyfja allan tímann og tók því þátt í einu ótrúlegasta lyfjamáli í sögu íþrótta og líklega eitt best varðveittasta leyndarmál hjólreiða.

Amstrong vill meina að US Postal Service hafi ekki hlotið skaða af lyfjahneykslinu en liðið sem Amstrong var hluti af bar nafnið US Postal/Discovery.

US Postal Service telur að Lance Amtrong hafi brotið samning við fyrirtækið en á sama tíma hagnast alveg gríðarlega.

Lögfræðingar hjólreiðakappans halda því staðfastlega fram að aðal styrktaraðili liðsins hafa í raun einnig grætt gríðarlega á samstarfinu við Amstrong og fara fram á það að málið verði látið niður falla.

Bandaríska póstþjónustan mun hafa greitt liðinu 40 milljónir dollara á þeim tíma sem umræðir og mun Amstrong persónulega hafa fengið 18 milljónir dollara eða tvo milljarða íslenskra króna.

Aftur á móti vilja lögfræðinga Lance Amstrong meina að fyrirtækið hafi hagnast um 140 milljónir dollara á samstarfinu við Amstrong en þar gefa þeir sér ákveðna rannsókn sem var gerð í kjölfar hneykslisins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×