Sterar, brjóst og eistu - Morgunblaðið og New York Times Birgir Guðjónsson skrifar 14. janúar 2013 10:00 Nýlega birtust myndir of íturvöxnum karlmönnum með kvenbrjóst vegna steraáhrifa en af tillitssemi var ekki getið um "ræfilsleg" og sennilega ófrjó eistu, svo notað sé þekkt hugtak. Varð um þetta nokkur umræða og undirritaður m.a. spurður um mannslát af völdum stera vegna fyrri afskipta af lyfjamálum. Svar mitt var ótvírætt: dauðsföll hafa orðið (og verða). Steranotkun virðist nú útbreidd á Íslandi og segja unglingar frjálslega frá tilboðum og vita um kunningja sem hafa tútnað út við æfingar. Virðist full ástæða til að fjalla um dapurlega stöðu lyfjafræðslu og eftirlits á landinu og rekja fyrri sögu. Árið 1982 hófst á Íslandi bann við misnotkun lyfja í íþróttum og eftirlit með því með gagnkvæmum samingum milli Íþróttasambanda Norðurlanda. Kjarninn var samkvæmt reglum Aþjóðaólympíunefndarinnar (AÓN) en strangari. Eftirlit utan keppni hófst. Einstaklingur sem væri fundinn sekur í einni grein íþrótta væri þá útilokaður í öllum greinum á öllum Norðurlöndum. Liðakeppni mundi alltaf tapast. Þetta voru ströngustu reglur í heiminum. Fræðsluefni var útbúið og því dreift. Árið 1984 féll fyrsti Íslendingurinn á lyfjaprófi og olli það mikilli hneykslun. Árið 1991 undirritaði þáverandi utanríkisráðherra Íslands „Evrópusamning gegn misnotkun lyfja í íþróttum". Í samningnum er vísað til samþykktar ráðherra á UNESCO fundi í Moskvu 1988 og fundar íþróttaráðherra í Reykjavík 1989. Í samningnum er m.a. kveðið á um upplýsingaskyldu yfirvalda.Hundskammaður Árið 1993 urðu tveir íslenskir íþróttamenn úr kraftagreinum bráðkvaddir og reyndust báðir hafa verið með stera í líkamssýnum. Annar var heimsþekktur einstaklingur. Erlendir fjölmiðlar birtu fregnir af láti hans. Meðal annarra birti fréttamaður London Times fréttina og ályktaði eins og fleiri að sterar væru orsökin eins og þekkt var hjá einstaklingum í þessari grein íþrótta. Hann gjörþekkti heim lyfjamisnotkunar og var t.d. fyrirlesari á þingum AÓN. Fréttamaðurinn fékk upphringingu frá sendiherra Íslands í London og var hundskammaður fyrir að birta slíkt níð um merkan Íslending. Undirritaður kynnti lögregluyfirvöldum, mennta(íþrótta)- og dómsmálaráðherra persónulega hvernig slík mál væru meðhöndluð á alþjóðavettvangi og hvaða þýðingu birtar upplýsingar hefðu sem aðvörun til ungmenna. Ráðuneytisstjóra forsætisráðherra voru afhent ítarleg gögn. Ekkert gerðist. Mikil var undrun fréttamanns London Times þegar hann frétti að á heiðursminningalista í bók um íþróttamanninn var nafn forseta Íslands efst og einnig forsætisráðherra og utanríkisráðherra. Hann þekkti ekki til þess að íþróttamaður sem létist vegna lyfjamisnotkunar væri hylltur af æðstu yfirvöldum og taldi þetta fréttnæmt. Með stuðningi AÓN voru hér á landi hafin námskeið um íþróttalæknisfræði árið 1992 og áhersla m.a. lögð á lyfjamisnotkun. Þau urðu fimm á 10 ára tímabili og voru sótt af um 400 einstaklingum þ.á.m. læknum, þjálfurum og íþróttamönnum. Jákvæð sýni fundust af og til við prófanir og voru afgreidd umtölulaust samkvæmt löngu mótuðum reglum og starfsferlum ÍSÍ án nokkurra mótmæla eða afskipta íþróttaforustunnar eða utanaðkomandi aðila.Sakaður um klaufaskap Þetta breyttist árið 2001. Þá fannst jákvætt sýni hjá einstaklingi úr félagi þáverandi forseta ÍSÍ, fyrirliða félagsliðs sem og landsliðs. Skorti á upplýsingum var borið við. Hófst nú mikil íhlutun forseta og fylgiliðs og formanns viðkomandi sérsambands, núverandi forseta ÍSÍ. Ekki minnkaði það við að viðkomandi einstaklingur var tengdur forstjóra fyrirtækis sem hafði lofað að greina orsakir allra sjúkdóma mannkyns og finna lausnir. Lögfræðideild fyrirtækisins var sett í málið. Fyrirtækið er nú fjárvana, hlutafé almennings tapað, engin lyf á sjóndeildarhringnum og fyrirtækið selt erlendum aðilum. Ef nafn fyrirtækisins gleymist má sjá það á málskjölum sendum með faxi frá fyrirtækinu. Undirritaður sem sat í Læknanefnd Alþjóðafrjálsíþróttasambandsins, var formaður þriggja laganefnda íþróttahreyfingarinnar og hafði stjórnað lyfjaeftirliti á Heimsmeistaramótum og Smáþjóðaleikum var ásakaður um klaufaskap og fáfræði um lyfjareglur. Eins og gerist í gjörspilltum þjóðfélögum höfðu þessir aðilar betur þrátt fyrir skýra skjalfesta afstöðu Alþjóðaólympíunefndarinnar og viðkomandi alþjóðasérsambands. Með þessu lauk trúverðugu lyfjaeftirliti á Íslandi og fræðslu um íþróttalæknisfræði. Verður fróðlegt að sjá hvort nýr erlendur eigandi fyrirtækisins að heilsufarsupplýsingum Íslendinga verði jafn áhrifamikill. Brandari sl. árs var baksíða Morgunblaðsins 31. desember, þar sem blaðið hælir sér af samstarfi við New York Times. Ég hef lesið það blað nánast daglega frá febrúar 1966. Fáir fjölmiðlar hafa barist jafn ötullega gegn lyfjamisnotkun. Á baksíðu Morgunblaðsins eru myndir af þeim tveimur sem hvað öflugast hafa grafið undan baráttunni við lyfjamisnotkun á Íslandi. Ég umorða ummæli Lloyd Bentsen þegar Dan Quayle líkti sér við John F. Kennedy í kappræðum varaforsetaefnanna 1988 og segi við Moggann: You are no New York Times. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Loftslagsávinningur Coda Terminal er gífurlegur Sigurður Loftur Thorlacius Skoðun Skaðinn í leyndri meðferð á heimilum Matthildur Björnsdóttir Skoðun Að verða fórnarlamb íslenskra skattyfirvalda Arnar Pálsson Skoðun „Eru ekki allir pínu einhverfir í dag?“ Andrea Ólafsdóttir Skoðun Bóluefni eða veirur Ágúst Kvaran Skoðun Tilgangur atvinnurekstrarbanns Lárus Sigurður Lárusson Skoðun Betri leið til að velja keppendur inn á Ólympíuleika Pawel Bartoszek Skoðun Af glyðrugangi eftirlitsstofnana Ester Hilmarsdóttir Skoðun 3.200 aumingjar (mín skoðun) Ole Anton Bieltvedt Skoðun Um vanda stúlkna í skólum Ragnar Þór Pétursson Skoðun Skoðun Skoðun „Eru ekki allir pínu einhverfir í dag?“ Andrea Ólafsdóttir skrifar Skoðun Betri leið til að velja keppendur inn á Ólympíuleika Pawel Bartoszek skrifar Skoðun Tilgangur atvinnurekstrarbanns Lárus Sigurður Lárusson skrifar Skoðun Að verða fórnarlamb íslenskra skattyfirvalda Arnar Pálsson skrifar Skoðun Loftslagsávinningur Coda Terminal er gífurlegur Sigurður Loftur Thorlacius skrifar Skoðun Bóluefni eða veirur Ágúst Kvaran skrifar Skoðun Skaðinn í leyndri meðferð á heimilum Matthildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Af glyðrugangi eftirlitsstofnana Ester Hilmarsdóttir skrifar Skoðun Linnulaus þjáning íbúa á Gaza Hrafnhildur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Munurinn á þjóðerniskennd versus sálernis þarfar upplifun Matthildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Verða rangfærslur að sannleika, ef þær eru endurteknar nógu oft!? Ole Anton Bieltvedt skrifar Skoðun Svifhrifavaldar Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Forseti ÍSÍ hvattur til að hefja tiltektina í eigin starfsemi Sigurður G. Guðjónsson skrifar Skoðun Hvernig og hvenær en ekki hvort Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Það er víst hægt að semja um aðildarskilmála! Mörg dæmi sanna það! Ole Anton Bieltvedt skrifar Skoðun Orðatónar: Aukinn orðaforði og lesskilningur barna með íslenskri tónlist Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Tilfinningalegur athyglisbrestur og heilbrigt tilfinningalíf Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Reglurnar eru óumsemjanlegar Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun 3.200 aumingjar (mín skoðun) Ole Anton Bieltvedt skrifar Skoðun Ber endurhæfing ávöxt? skrifar Skoðun Heimur á heljarþröm skrifar Skoðun Foreldrar á 4. vaktinni Sara Rós Kristinsdóttir,Lóa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Norður-Kórea er víða Ingvar Smári Birgisson skrifar Skoðun Það getur verið gott að búa til steind Ari Trausti Guðmundsson skrifar Skoðun Uppskeruhátíð öldrunarfræða á Norðurlöndum Sirrý Sif Sigurlaugardóttir skrifar Skoðun Gullverðlaun í mengun Guðmundur Ingi Kristinsson skrifar Skoðun Gen og glæpir Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar Skoðun 10 tæknilegir yfirburðir rafbíla Sigurður Ingi Friðleifsson skrifar Skoðun Um vanda stúlkna í skólum Ragnar Þór Pétursson skrifar Skoðun Land, borgir og samgöngur Guðjón Sigurbjartsson skrifar Sjá meira
Skoðun Verða rangfærslur að sannleika, ef þær eru endurteknar nógu oft!? Ole Anton Bieltvedt skrifar
Skoðun Forseti ÍSÍ hvattur til að hefja tiltektina í eigin starfsemi Sigurður G. Guðjónsson skrifar
Skoðun Það er víst hægt að semja um aðildarskilmála! Mörg dæmi sanna það! Ole Anton Bieltvedt skrifar
Skoðun Orðatónar: Aukinn orðaforði og lesskilningur barna með íslenskri tónlist Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar