Bíó og sjónvarp

Framhaldið toppar Dumb and Dumber

Jim Carrey og Jeff Daniels í Dumb and Dumber.
Jim Carrey og Jeff Daniels í Dumb and Dumber.
Leikarinn Jeff Daniels hefur lofað aðdáendum gamanmyndarinnar Dumb and Dumber að framhaldið, Dumb and Dumber To, sem er í undirbúningi verði ansi hressilegt.

Í viðtali við E! Online eftir að hann tók á móti Emmy-verðlaununum fyrir hlutverk sitt í The Newsroom sagði Daniels að hann væri á leiðinni í tökur á framhaldsmyndinni í borginni Atlanta. "Þetta verður eiginlega frjálst fall á gáfnafari, frá Will McAvoy (The Newsroom) yfir í Harry Dunn."

Hann bætti við: "Þarna verða atriði sem láta klósettsenuna í fyrstu myndinni líta út fyrir að vera glötuð. Hún fölnar í samanburðinum. Ég get ekki tjáð mig meira um þetta en get fullyrt að hún verður toppuð."

Næstum tuttugu ár eru liðin síðan hin vinsæla Dumb and Dumber kom út með Daniels og Jim Carrey í aðalhlutverkum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.