Það er alltaf eitthvað sem sækir á hugann Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 24. september 2013 14:00 "Ég hef haft langan tíma og mætt góðu fólki sem hefur haft skilning á þessu starfi,“ segir Þórður um fornminjasöfnun sína. Mynd/Óli Haukur Valtýsson
Eldhuginn Þórður Tómasson í Skógum hefur gefið út sína 20. bók, Sýnisbók safnamanns, með myndum og fróðleik af munum á Skógasafni. Frásagnargáfa hans nýtur sín þar vel. Þótt Þórður í Skógum sé komin á tíræðisaldur er hann atorkusamur og andinn skýr. Um það vitnar ný bók hans, Sýnisbók safnamanns, sem kom út síðasta föstudag hjá Sæmundi, bókaforlagi Bjarna Harðarsonar. Á annað hundrað manns mættu í útgáfuhófið í Eymundsson. „Þetta var mjög skemmtilegur dagur fyrir mig,“ segir Þórður sem gerði sér lítið fyrir í lok samkomunnar og fór með pápíska bæn sem hann lærði af Sigurbjörgu á Syðstu-Grund, fæddri 1851. Framsagnarmátinn minnti á rapp. Fólk getur hlustað á upptökuna í spilaranum hér fyrir neðan. Í Sýnisbók safnamanns eru myndir og skemmtilegar frásagnir af gripum sem Þórður hefur bjargað frá glötun á safnasvæði sínu, sem einkum er bundið Vestur-Skaftafellssýslu og Rangárvallasýslu. Þegar honum er hrósað fyrir bókina svarar hann að bragði: „Hún er vel hönnuð eins og fólk segir á nútímamáli.“ Verkefnin eru óþrjótandi hjá Þórði. „Það er alltaf eitthvað sem sækir á hugann. Ég á svo mikið efni sem ég er ekki búinn að vinna úr enn og tíminn er orðinn naumur – það er svo stutt í síðasta áfangann, ég veit það. Þegar maður er kominn yfir nírætt má maður þakka fyrir hvern góðan dag. En ég er frískur enn þá,“ segir Þórður, sem er níutíu og tveggja ára. Hann kveðst eiga handrit, næstum fullmótað, í aðra stóra bók; efnið er um mjólkurvinnslu, „hvernig á að koma mjólk í mat“. En er hann hættur að vinna í Skógasafni? „Nei, ég kem í safnið á hverjum degi og hef tekið þar á móti norskum hópum vikulega í sumar. Við endum alltaf á því að fara upp í kirkju og syngja einn fallegan sálm,“ lýsir hann. Þórður var um fermingaraldur þegar hann hóf að safna fornminjum. „Það var ákveðin köllun sem ég stjórnaði ekki sjálfur,“ fullyrðir hann „Ég áttaði mig á því að gamla þjóðfélagið var að breytast og ný menning að yfirtaka, að hin gömlu atvinnutæki voru orðin til engra nytja og ekkert lá annað fyrir þeim en að eyðast og hverfa. Það er grunnurinn á bak við þetta. Ég hef haft langan tíma og mætt góðu fólki sem hefur haft skilning á þessu starfi. Því er ég ágætlega ánægður með dagsverkið.“
Menning Mest lesið Lil Curly og Brynja ekki lengur bara vinir Lífið Brad Pitt stoppaði í hamborgara í Dalakofanum Lífið Frægir kynnar á ráðstefnu Demókrata Lífið Hleypur hálfmaraþon fyrir Sindra: „Það sem skiptir máli er að klára þetta fyrir Sindra“ Lífið Litla Melabúðin slær í gegn hjá Vesturbæingum Lífið Byrjaði í smábrotum en vatt svo upp á sig Lífið „Þjóðarmorðið í Palestínu hefur sameinað þær“ Lífið Heitustu hinsegin pör landsins Lífið „Þetta er enginn helvítis félagskvíði, það bara þolir mig enginn“ Áskorun Dóttir Snæfríðar og Högna komin með nafn Lífið Fleiri fréttir Forstöðumaðurinn fannst í Salnum Óður til kvenlíkamans í öllu sínu veldi Óli Egils snýr sér að Ladda eftir Bubba Snæbjörn nýr leikhússtjóri í Tjarnarbíói Allt á fullri ferð á Húsavík um helgina Guðrún Jóhanna nýr skólastjóri Söngskólans Umræða um feðraveldi og karlrembu skekur djassbransann Útlit fyrir bíólausa Akureyri Komið að endalokum eftir 25 ár Kanónur með listræna þrennu á Flateyri „Leiðin verður að vera óviss svo vel sé“ „Ég lofa miklu blóði“ Gera grín að bransanum með „virtustu verðlaunum heims“ Fjöldamet á stærstu listasýningu í sögu Hornafjarðar Sjá meira