Tónlist

Jón Þór fagnar nýrri sólóplötu

Jón Þór heldur útgáfutónleika á föstudag.
Jón Þór heldur útgáfutónleika á föstudag.
Tónlistarmaðurinn Jón Þór, fyrrum söngvari og gítarleikari Lödu Sport og Dynamo Fog, heldur upp á útgáfu sinnar fyrstu sólóplötu, Sérðu mig í lit?, á Faktorý á föstudaginn.

Platan, sem kom út seint á síðasta ári, er kraftmikil en jafnframt persónuleg og sérstæð blanda af íslensku rokki og indípoppi. Lögin Tímavél og titillagið Sérðu mig í lit? hafa fengið þó nokkra spilun á öldum ljósvakans. Ýmsir hljóðfæraleikarar sem léku með Jóni Þór á plötunni munu einnig leiða fram krafta sína á útgáfutónleikunum. Einnig mun hið frábæra, melódíska brimrokkband Gang Related, sem gaf út plötuna Stunts and Rituals taka þátt í fjörinu. Húsið opnar opnar klukkan 22 og tónleikarnir hefjast á slaginu 23. Miðaverð er 1000 krónur og platan Sérðu mig í lit? verður til sölu á góðu verði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.