Lífið

Í form á allra færi

Halla Þórlaug Óskarsdóttir skrifar
Starfsfólk Háfit er fólk sem er framúrskarandi á sínu sviði.
Starfsfólk Háfit er fólk sem er framúrskarandi á sínu sviði. Mynd/Rakel Tómasdóttir
Davíð Ingi Magnússon, meistaranemi í lögfræði, tók ákvörðun á vormánuðum um að taka sjálfan sig í gegn. Hann fór í Háskólaræktina og byrjaði að hlaupa. Eins og margir kannast við koma hugmyndir gjarnan fljúgandi þegar lögð er rækt við líkamann. Davíð lét því ekki þar við sitja heldur ákvað að freista þess að koma öllum háskólanemum í form.

Nú hefur hann stofnað, ásamt fríðu föruneyti, fjarþjálfun Háskólafitness, eða Háfit.

Hann kynnti hugmyndina fyrir stjórn Háskóla Íslands, sem leist vel á, og ákveðið var að hefja samstarf. Davíð segir hugmyndina ekki síst lúta að því að virkja þekkinguna sem verður til í háskólanum.

„Innan veggja skólans má finna vel menntaða næringarfræðinga, sjúkraþjálfara, lækna og íþróttafræðinga.“

Davíð setti þá saman teymi af úrvalsfólki. „Ég vildi fá fólk sem er framúrskarandi á sínu sviði. Ragna Baldvinsdóttir er semídúx úr íþróttafræði, Daði Reynir Kristleifsson sjúkraþjálfari er Evrópumeistari í krossfitt og Elísabet Margeirsdóttir næringarfræðingur hefur hlaupið sjö maraþon, eitt 100 km hlaup og er hvergi nærri hætt,“ segir hann og brosir.

Eftir að stjórn skólans samþykkti samstarf tók Davíð að hanna og forrita vefsíðu, ásamt Rakel Tómasdóttur hönnuði. Á vefsíðunni geta áskrifendur meðal annars nálgast myndbönd af öllum æfingunum, sem og útskýringar á textaformi. „Sjúkraþjálfarinn okkar, Daði Reynir, útskýrir æfingarnar gaumgæfilega, enda er mikilvægt að fólk geri æfinguna rétt frá upphafi.“

Ragna íþróttafræðingur útbýr allar æfingaáætlanir og Elísabet næringarfræðingur reiknar út orku- og næringarþörf hvers og eins út frá markmiðum og æfingaplani.

Skráning er hafin, en þeir sem skrá sig mæta í mælingu í september og í kjölfarið er líkamsræktaráætlun útbúin, út frá markmiðum hvers og eins. „Háskólaræktin er ódýrasta líkamsrækt á Íslandi,“ segir Davíð. „Okkar starfsemi verður í takt við það. Við bjóðum upp á þjónustu á verði sem stúdentar ráða við.“

Hægt er að skrá sig og nálgast allar nánari upplýsingar á vefsíðu Háfit, www.hafit.is.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.