Lífið

Þríþrautarnámskeið haldið fyrir börn og unglinga í Kópavogi

Starri Freyr Jónsson skrifar
Hjólreiðar eru hluti af þríþraut.
Hjólreiðar eru hluti af þríþraut. Mynd/viðar þorsteinsson
Fyrsta þríþrautarnámskeiðið sem haldið er hérlendis fyrir börn og unglinga fór fram í síðustu viku í Kópavogi. Eftir fjögurra daga þjálfun tóku þau þátt í þríþrautarmóti á sunnudag þar sem allir stóðu uppi sem sigurvegarar.

Námskeiðið og mótið var á vegum Þríkó, Þríþrautarfélags Kópavogs, og var uppselt á námskeiðið. Viðar Þorsteinsson, stjórnarmaður í félaginu og hjólaþjálfari, var einn þeirra sem komu að skipulagi viðburðarins og segist hann vera ánægður með þátttökuna í ár.

„Þetta var duglegur hópur átján krakka af báðum kynjum. Á námskeiðinu fórum við yfir greinarnar þrjár, hjólreiðar, sund og hlaup, og fengum nokkra þjálfara í lið með okkur, meðal annars Sigga Martinsson sem er búsettur í Englandi þar sem hann þjálfar krakka í þríþraut. Lítið þríþrautarmót fyrir þennan aldurshóp var svo haldið á sunnudaginn og tókst mjög vel. Veðrið var að vísu ekki gott, það rigndi mikið, en krakkarnir létu það ekki á sig fá og stóðu sig með prýði.“

Krakkarnir sem tóku þátt voru á aldrinum 9-15 ára og var kynjahlutfallið jafnt að sögn Viðars. Hann segir þríþraut vera mjög góðan valkost fyrir krakka sem finna sig ekki í hefðbundnum íþróttagreinum. „Íþrótt sem blandar saman sundi, hlaupum og hjólreiðum er auðvitað frábær hreyfing fyrir krakka og raunar fólk á öllum aldri. Það er sérstaklega mikilvægt að tileinka sér strax sundið í upphafi, enda erfiðara fyrir eldra fólk að rifja upp réttu sundtaktana, þá sérstaklega skriðsund.“

Þríkó stefnir að því að stofna sérstaka deild innan Breiðabliks þar sem meðal annars verður boðið upp á þríþrautarþjálfun fyrir börn og unglinga. „Það er vissulega draumurinn hjá okkur en til þess að það verði að veruleika þarf að vera til staðar fastur kjarni af krökkum sem æfa allt árið. Nokkrir þeirra eru mjög áhugasamir og við erum að skoða þessi mál betur.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.