NBA í nótt: Durant fór illa með Lakers Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 14. desember 2013 11:00
Kobe Bryant var enn einu sinni í tapliði en lið hans, LA Lakers, átti lítinn möguleika gegn öflugu liði Oklahoma City í einum af þrettán leikjum næturinnar í NBA-deildinni í körfubolta.Oklahoma City vann Lakers, 112-97. Durant var með 31 stig í leiknum fyrir Oklahoma City sem er enn ósigrað á heimavelli í vetur og hefur nú unnið Lakers fjórum sinnum í röð. Russel Westbrook átti einnig góðan leik en hann skoraði nítján stig, gaf tólf stoðsendingar og tók átta fráköst. Lakers hefur nú tapað öllum þremur leikjum sínum eftir endurkomu Kobe Bryant. Hann var nálægt persónulegu meti sínu með þrettán stoðsendingum en það dugði ekki til. Hann skoraði aðeins fjögur stig í leiknum.Atlanta vann Washington, 101-99, í framlengdum leik. Al Horford var með 34 stig og tryggði sínum mönnum sigur með flautukörfu í framlengingunni. Paul Millsap og Kyle Korver voru með sextán stig hvor fyrir Atlanta en Horford tók alls fimmtán fráköst í leiknum.San Antonio vann Minnesota, 117-110, þrátt fyrir að Kevin Love hafi sett niður 42 stig fyrir síðarnefnda liðið. Tony Parker var með 29 stig fyrir San Antonio og Manu Ginobili 20.Boston vann New York, 90-86, í slag stórborganna á austurströndinni. Avery Bradley skoraði þrettán stig í leiknum en sjö í fjórða leikhlutanum, þar af mikilvæga þriggja stiga körfu þegar lítið var eftir af leiknum. Carmelo Anthony skoraði 26 stig fyrir New York og Andrea Bargnani 22. Það dugði þó ekki til. Þetta var tólfta tap New York í síðustu fimmtán leikjum liðsins.Úrslit næturinnar: Indiana - Charlotte 99-94 Orlando - Cleveland 100-109 Toronto - Philadelphia 108-100 Atlanta - Washington 101-99 Boston - New York 90-86 Detroit - Brooklyn 103-99 Oklahoma City - LA Lakers 122-97 Milwaukee - Chicago 90-91 San Antonio - Minnesota 117-110 Denver - Utah 93-103 Phoenix - Sacramento 116-107 Golden State - Houston 112-116
NBA Mest lesið Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Enski boltinn Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Formúla 1 Viktor Gísli öflugur gegn PSG Handbolti Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti ÍBV og Grótta með sigra Handbolti Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Fótbolti Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Fótbolti Arsenal sneri dæminu sér í vil Fótbolti Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Handbolti Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Íslenski boltinn Fleiri fréttir Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Sjá meira