Tónlist

Ný tónleikaröð á Akureyri

Alison MacNeil, aðalsöngkona hljómsveitarinnar Kimono.
Alison MacNeil, aðalsöngkona hljómsveitarinnar Kimono. fréttablaðið/valli
Tónleikaröðin Sérfræðingar að Sunnan! hefst í kvöld með tónleikum hljómsveitarinnar Kimono í Hofi á Akureyri. Tónleikarnir hefjast kl. 20.30 og sér eyfirska hljómsveitin Buxnaskjónar um upphitun.

Tónleikar í tónleikaröðinni verða mánaðarlega fram að áramótum og tilgangurinn er að spyrða saman norðlensku og sunnlensku tónlistarfólki og búa til öflugan grundvöll að frekari samvinnu milli íslensks tónlistarfólks.

Miðaverð á tónleikana er 2.000 krónur en námsmenn fá 25% afslátt. Miðasala fer fram á vef Hofs, Menningarhus.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.