Tónlist

Fulltrúi Metal Hammer dæmir

Rokkararnir í Gone Postal spila á Wacken-kvöldinu á laugardaginn.
Rokkararnir í Gone Postal spila á Wacken-kvöldinu á laugardaginn.
Sex erlendir blaðamenn frá mörgum af virtustu þungarokkstímaritum heims verða gestir á hljómsveitakeppninni Wacken Metal Battle sem verður haldin í Eldborg í Hörpu á laugardagskvöld.

Blaðamennirnir koma frá tímaritunum Metal Hammer, Terrorizer, Brave Words, Loud Magazine, Devilution og Scream Magazine. Einnig mæta á svæðið fulltrúar útgáfufyrirtækisins Season of Mist og norsku tónlistarhátíðarinnar Inferno. Þessir aðilar verða í dómnefnd keppninnar ásamt hópi íslenskra tónlistarsérfræðinga.

Sérstakir gestir þetta kvöld verða rokkararnir í Skálmöld og verður þetta í fyrsta sinn sem þeir spila í Eldborg. Sigursveitin frá því í fyrra, Gone Postal, stígur einnig á svið, ásamt hinni efnilegu Trust the Lies. Hljómsveitirnar sem taka þátt í keppninni í ár eru In the Company of Men, Moldun, Abacination, Azoic, Ophidian I og Blood Feud. Sigurvegarinn kemur fram á tónlistarhátíðinni Wacken Open Air í Norður-Þýskalandi. Þetta verður í fimmta sinn sem undankeppnin er haldin á Íslandi.

Hljómsveitin sem vinnur lokakeppnina í Þýskalandi fær útgáfusamning við Nuclear Blast Records, hljóðfæri og græjur. Nánari upplýsingar um keppnina í Eldborg má finna á metal-battle.com og á facebook.com/wackenmetalbattleiceland.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.