Bíó og sjónvarp

Harry Potter-leikstjóri gæti tekið að sér Scarface

Leikstjórinn David Yates á í viðræðum við Universal um Scarface.
Leikstjórinn David Yates á í viðræðum við Universal um Scarface.
Leikstjórinn David Yates, sem er hvað þekktastur fyrir að hafa leikstýrt síðustu fjórum kvikmyndunum um Harry Potter, á í viðræðum við framleiðslufyrirtækið Universal um að taka að sér leikstjórn Scarface, en til stendur að endurgera þá kvikmyndaklassík.

Ekki er komið á hreint hvort Yates taki verkefnið að sér, en hann hefur ekki leikstýrt kvikmynd frá því að Harry Potter and the Deathly Hallows Part II kom út árið 2011.

Honum var boðið að taka að sér að leikstýra mynd sem byggð yrði á skáldsögunni The Stand eftir Stephen King.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.