Kristinn Jakobs dæmdi víti í uppbótartíma og Swansea missti af sigri Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. október 2013 18:45 Kristinn Jakobsson. Mynd/Daníel
Swansea var nokkrum sekúndum frá því að fagna sigri í þriðja Evrópuleiknum í röð í kvöld en velska liðið fékk á sig vítaspyrnu í uppbótartíma þar sem Djibril Cissé tryggði rússneska liðinu Kuban Krasnodar 1-1 jafntefli. Kristinn Jakobsson dæmdi réttilega vítaspyrnu í uppbótartíma leiksins þar sem varamaðurinn Ibrahima Baldé var felldur. Þetta var fyrsta mark og fyrsta stig Kuban Krasnodar í Evrópudeildinni. Swansea-liðið gat samt þakkað íslenska dómaranum fyrir það að lenda ekki manni færri strax í fyrri hálfleiknum og þá voru Rússarnir mjög sprækir fyrir hálfleik þótt að það hafi ekki skilað þeim marki. Michu skoraði mark Swansea á 68. mínútu eftir undirbúning þeirra Alejandro Pozuelo og Jonjo Shelvey og það leit allt út fyrir að það yrði sigurmarkið. Kristinn Jakobsson dæmdi leikinn engu að síður mjög vel en það er hætt við því að hann verð samt dæmdur af þessu umdeilda atviki í fyrri hálfleiknum. Kristinn hefði auðveldlega getað rekið Swansea-manninn Dwight Tiendalli af velli í fyrri hálfleik þegar hann togaði niður Lorenzo Melgarejo sem var að sleppa í gegn. Kristinn gaf hinsvegar bara gult spjald og lærisveinar Michael Laudrup sluppu með skrekkinn.
Evrópudeild UEFA Mest lesið McGregor fundinn sekur og þarf að borga tugi milljóna í skaðabætur Sport Líta á tilboðið í Gylfa sem grín Íslenski boltinn Létt gönguferð í skóginum hjá Arsenal Enski boltinn Stelpurnar okkar rændar jöfnunarmarki? Handbolti „Bjóst bara við því að við værum að fara vinna árið eftir“ Körfubolti Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Íslenski boltinn Einfalt hjá Chelsea sem sækir að toppnum Enski boltinn Hvað gera flokkarnir fyrir afreksfólk í íþróttum? Sport Albert kemur til greina sem sá besti á Ítalíu Fótbolti Fjórtán ára á æfingum með Arsenal Enski boltinn Fleiri fréttir Bodø/Glimt með langþráðan sigur Úlfarnir skelltu Fulham og enn bíður Villa eftir sigri Í beinni: Man. City - Tottenham | City tapað fjórum leikjum í röð Í beinni: Milan - Juventus | Gamla konan enn taplaus Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Cecilía búin að loka og læsa marki Inter Stefan ætlar að koma Keflavík í deild þeirra bestu Jóhann lagði upp langþráð mark Ævintýri Róberts og félaga heldur áfram Ingibjörg og Hafrún nálgast Emilíu Létt gönguferð í skóginum hjá Arsenal Einfalt hjá Chelsea sem sækir að toppnum Fjórtán ára á æfingum með Arsenal Líta á tilboðið í Gylfa sem grín Fær konuna til að eiga við draugana og ætlar ekki að pissa í hornin Albert kemur til greina sem sá besti á Ítalíu Amorim fullur sjálfstrausts á fyrsta blaðamannafundinum Meistararnir og Skytturnar missa út lykilmenn Valgeir til Breiðabliks Eyþór yfirgefur KR Annað áfall fyrir Hörð sem fór til sama læknis og Rodri Ísland mætir Kósovó í sérstöku umspili Írarnir hans Heimis mæta Búlgörum Lewandowski fékk ekki að fara til Man. Utd Allt lítur vel út hjá Pablo Punyed Ed Sheeran hjálpaði Ipswich að ná í leikmann rétt fyrir Taylor Swift tónleika Alexia Putellas með sitt tvö hundruðasta mark fyrir Barcelona Nýr Etihad leikvangur hinum megin við Atlantshafið Guardiola samdi til ársins 2027 Segja að Haaland og félagar fái gjafapakka frá FIFA Sjá meira