Lífið

Vinsælustu eftirréttirnir 2013

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Dröfn er fjögurra barna móðir og hefur gaman af því að spá í uppskriftir.
Dröfn er fjögurra barna móðir og hefur gaman af því að spá í uppskriftir. Myndir/Dröfn Vilhjálmsdóttir
Dröfn Vilhjálmsdóttir, bókasafns- og upplýsingafræðingur og geislafræðingur heldur úti blogginu Eldhússögur, eldhussogur.com. Hún hefur tekið saman lista yfir vinsælustu eftirrétti ársins 2013.

Á toppinum trónir Snickers-kakan sem hefur vakið mikla lukku meðal landsmanna. Í öðru sæti er karamellumarengsterta og í því þriðja klassísk, frönsk súkkulaðikaka. Í fjórða sæti er svo súkkulaðikaka með Pipp-karamellukremi.

Fréttablaðið birtir hér fjóra vinsælustu réttina og vonar Dröfn að uppskriftirnar geti veitt landsmönnum innblástur fyrir eftirréttina á gamlárskvöld.

Snickerskakan fór eins og eldur um sinu um internetið á árinu.Myndir/Dröfn Vilhjálmsdóttir
1. Snickers-kaka

4 egg

4,5 dl sykur

2 tsk. vanillusykur

8 msk. kakó

3 dl hveiti

200 g smjör, brætt

100 g Pipp-súkkulaði með karamellu (má sleppa)

Krem

2 dl salthnetur

200 g rjómasúkkulaði

Ofninn hitaður í 175°C, undir- og yfirhita, og ca. 26 cm smelluform smurt að innan. Smjörið brætt og látið kólna dálítið. Egg og sykur þeytt saman. Því næst er vanillusykur, kakó, brætt smjör og hveiti hrært út í. Deiginu er hellt í bökunarformið og Pipp-molunum þrýst ofan í deigið hér og þar. Því næst er kakan bökuð í miðjum ofni við 175°C (undir- og yfirhita) í 30 til 40 mínútur, kakan á að vera blaut í miðjunni.

(Í mínum ofni dugði 30 mínútna bökunartími en hjá sumum hefur kakan verið of blaut eftir 30 mínútur – það þarf að finna út rétta tímann fyrir hvern ofn og fylgjast vel með kökunni. Athugið að hitinn er gefinn upp fyrir undir- og yfirhita, sami hiti á blæstri er í raun hærri hiti.)

Á meðan er rjómasúkkulaðið brætt yfir vatnsbaði og hnetunum bætt út í þegar súkkulaðið hefur bráðnað. Þegar kakan er komin úr ofninum og hefur kólnað dálítið er kreminu hellt yfir kökuna og hún kæld í minnst tvo tíma áður en hún er borin fram með þeyttum rjóma.

Marengskakan svíkur engan.Myndir/Dröfn Vilhjálmsdóttir
2. Karamellu- marengsterta

Marengs

2-3 bollar Rice Krispies (eða Corn Flakes)

2 dl sykur

1 dl púðursykur

4 eggjahvítur

Ofn hitaður í 120°C við blástur (ef baka á báða botnana samtímis) eða 130°C við undir- og yfirhita. Eggjahvítur, púðursykur og sykur er þeytt þar til marengsinn er orðinn stífur. Þá er Rice Krispies bætt varlega út í marengsinn með sleikju. Diskur eða kökuform sem er ca. 23 cm í þvermál er lagt á bökunarpappír og strikaður hringur eftir disknum. Þetta er gert tvisvar. Marengsinum er skipt í tvennt og hvor helmingur settur á sinn hring. Því næst er slétt jafnt úr marengsinum innan hringsins með sleikju eða spaða. Þá er marengsinn bakaður í 120°C (blástur) í heitum ofni í ca. 50-60 mínútur. Best er að láta marengsinn kólna í ofninum.

Rjómafylling

5 dl rjómi

200 g Nóa-kropp með karamellubragði (eða þetta hefðbundna)

1 askja fersk jarðarber skorin í bita og/eða bláber (má sleppa en ég mæli með því að hafa ber!)

Rjóminn er þeyttur og Nóa-kroppinu ásamt berjunum er bætt út í rjómann. Blandan er svo sett á milli marengsbotnanna.

Rolokrem

ca. 2½ rúlla af Rolo (ég keypti 3 rúllur í pakka og skreytti tertuna með hálfu rúllunni sem eftir var)

50 g suðusúkkulaði

örlítill rjómi til að þynna kremið 

Suðusúkkulaðið brotið niður í skál og Roloinu bætt út í. Brætt yfir vatnsbaði, ef þess þarf þá er hægt að þynna blönduna með dálitlu af rjóma. Kreminu er svo hellt yfir tertuna. Það er fallegt að skreyta hana með jarðarberjum eða hindberjum, nokkrum niðurskornum Rolobitum og rifnu suðusúkkulaði. Tertan er geymd í ísskáp og er langbest daginn eftir þegar hún hefur fengið að brjóta sig.

Frönsk súkkulaðikaka á upp á pallborðið hjá mörgum.Myndir/Dröfn Vilhjálmsdóttir
3. Frönsk súkkulaðiterta

Botn

2 dl sykur

200 g smjör

200 g suðusúkkulaði

1 dl hveiti

4 stk. egg

Þeytið eggin og sykurinn vel saman. Bræðið smjörið og súkkulaðið saman við vægan hita í potti. Blandið hveitinu saman við eggin og sykurinn. Bætið bráðnu súkkulaðinu og smjörinu að lokum varlega út í deigið. Bakið í vel smurðu tertuformi (ath. ekki lausbotna) við 170°C í 30 mínútur.

Súkkulaðikrem

150 g suðusúkkulaði

70 g smjör

2-3 msk. síróp

Látið allt saman í pott og bræðið saman við vægan hita. Kælið bráðina svolítið og berið hana síðan á kökuna þegar hún hefur kólnað.

Kakan á að vera blaut í miðjunni. Gott er að bera kökuna fram með rjóma eða ís og berjum, til dæmis jarðarberjum, hindberjum eða bláberjum.

Súkkulaðikakan með Pipp-karamellukreminu er góð með jarðarberjum.Myndir/Dröfn Vilhjálmsdóttir
4. Súkkulaðikaka með Pipp-karamellukremi

250 g suðusúkkulaði

180 g smjör

2 tsk. Neskaffi, kaffiduft mulið, t.d. í mortéli (má sleppa)

2 dl sykur

4 egg

2 tsk. vanillusykur

½ tsk. lyftiduft

½ dl hveiti (má nota maísenamjöl fyrir glútenfría köku)

Krem

25 g smjör

½ dl rjómi

200 g Pipp með karamellukremi (selt í 100 g plötum) eða með piparmyntu

Ofninn hitaður í 175°C. Smelluform (24 cm) smurt að innan. Súkkulaði brotið niður í pott ásamt smjöri, brætt við vægan hita og hrært í á meðan. Potturinn tekinn af hellunni og blandan látin kólna dálítið. Neskaffi mulið mjög smátt (ég gerði það í mortéli) og því bætt út í ásamt sykri og eggjum, hrært vel með písk þar til blandan er slétt. Hveiti, vanillusykri og lyftidufti blandað saman og sigtað ofan í pottinn. Hrært þar til blandan er slétt. Deiginu er hellt í smurt bökunarform og bakað í ca. 45-50 mínútur neðarlega í ofninum. Fylgist vel með kökunni, hún má vera blaut í miðjunni.

Krem

Hráefnið í kremið sett saman í pott og brætt við vægan hita, hrært þar til Pipp-súkkulaðið er bráðnað og kremið er slétt og glansandi. Potturinn tekinn af hellunni.

Þegar kakan hefur kólnað og kremið þykknað dálítið er því smurt yfir kökuna. Kakan skreytt með t.d. jarðarberjum og borin fram með þeyttum rjóma eða vanilluís.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.