Lífið

Bieber hneykslar

MYNDIR / COVER MEDIA
Ungstirnið Justin Bieber kemur sífellt á óvart þessa dagana. Heimsbyggðin nötraði þegar myndir náðust af Justin reykja jónu fyrir stuttu og ekki skánaði ástandið þegar fyrrverandi lífvörður hans kærði hann fyrir líkamsárás.

Justin toppaði sjálfan sig um helgina þegar hann birti mynd af sér á Instagram þar sem hann múnar myndavélina.

Ekki lítill lengur.
Justin sá greinilega af sér og fjarlægði myndina, eftir að hún hafði fengið fimmtán þúsund "like" og 2700 athugasemdir höfðu verið skrifaðar við hana.

Justin tryllir aðdáendur.
Kanadíska poppstjarnan er nú á tónleikaferðalagi og kemur fram á nokkrum tónleikum í Bandaríkjunum á næstu dögum. Er stressið að segja til sín?





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.