Bíó og sjónvarp

Hrafn býður fólki á Óðal feðranna

Freyr Bjarnason skrifar
Hrafn býður fólki heim til sín til að sjá Óðal feðranna.
Hrafn býður fólki heim til sín til að sjá Óðal feðranna. Fréttablaðið/GVA
Heimabíó Hrafns Gunnlaugssonar er orðið að föstum lið á Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík, RIFF.

Í fyrra bauð hann fólki heim til sín á Laugarnestanga til að horfa á eigin mynd, Hrafninn flýgur, og var eftirspurnin eftir sæti í stofunni hans langt umfram framboð.

Hrafn hefur því ákveðið að bjóða gestum RIFF aftur til sín og í þetta sinn verður mynd hans Óðal feðranna frá árinu 1980 sýnd. Viðburðurinn fer fram 29. september og munu vafalítið færri komast að en vilja.

Hægt er að kaupa miða á viðburðinn á heimasíðu RIFF.

Hér fyrir neðan má sjá brot úr myndinni en það er fengið af vefnum Kvikmyndir.is.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.