Laxeldi í sjó eða á landi Orri Vigfússon skrifar 28. febrúar 2013 06:00 Hugmyndir um laxeldi í Ísafjarðardjúpi og á Austfjörðum hafa enn skotið upp kollinum. Eðlilegt er að Íslendingar séu vakandi fyrir nýjum atvinnutækifærum en sú starfsemi má ekki bitna á náttúrunni. Síðastliðin 40–50 ár hefur laxeldi í sjókvíum verið margreynt og oftast mistekist. Náttúrulegar aðstæður í vistkerfinu reyndust fiskeldi ofviða. Lýs, þörungablómi og marglyttur herjuðu á kvíafiskinn og ógjörningur var að verja kvíarnar fyrir fuglum, selum og hvölum. Óhöpp, mannleg mistök og ytri aðstæður hafa orðið til þess að fjárfestingarnar hafa fengið ömurlegan endi. Ótaldir milljarðar hafa glatast og tapreksturinn lent á skattgreiðendum. Efnahagsleg velgengni Íslendinga byggist á að veiða, vinna og selja villtan fisk úr ómenguðum sjó við landið. Því er eðlilegt að spyrja hvort sú hreina og jákvæða ímynd sem íslenskur fiskur hefur á heimsmörkuðum sé í mótsögn við fiskeldi í sjó. Slíkt eldi hefur stórskaðað lífríki við strendur og í vatnakerfum Noregs, Skotlands, Írlands og Kanada. Mengun og úrgangur – köfnunarefni og fosfór – frá fiskeldisfyrirtækjum er óheyrilegur. 7.000 tonna laxeldi, eins og rætt er um í Ísafjarðardjúpi, mengar á við 157.000 manna bæjarfélag. Þolir Djúpið slíkt álag? Laxalús frá kvíaeldi hefur eyðilagt norskar laxveiðiár. Í Noregi hefur veiði því verið hætt í um 110 ám, aðallega vegna mengunar frá laxeldi og áhrifa stíflna fyrir raforkuver. Laxalúsin leggst á og drepur laxaseiði sem eru nýgengin til sjávar. Fyrirhuguð staðsetning kvía fyrir utan ósa laxánna innst í Djúpinu myndi því drepa laxastofnana. Rækjan og þorskurinn í Ísafjarðardjúpi munu og bíða skaða af mengun frá laxeldinu auk þess sem laxakvíar hafa neikvæð sjónræn áhrif á þrönga Vestfirðina. Þangað sækja ferða- og sjóstangaveiðimenn í leit að hinni sérstæðu og ósnortnu náttúru. Aðdráttarafl Vestfjarða minnkar til muna þegar firðir fyllast af sjókvíum. Ótalin er hætta af lyfjum og sjúkdómum sem fylgja laxeldi. Lúsalyfin eru sérstaklega hættuleg skelfiski. Þau virka á skel lúsarinnar og á allan skelfisk í umhverfinu. Rannsaka þyrfti hvort fiskeldi hafi spillt hörpuskel í Breiðafirði og humar undan suðausturströnd landsins þar sem lyfjamengað skolið úr Austfjarðaeldinu fer út á miðin.Lax mun alltaf sleppa Lax mun alltaf sleppa úr sjókvíum og strokulaxar synda hratt upp í nærliggjandi ár þar sem þeir blandast auðveldlega villtum fiskum sem fyrir eru. Langvarandi laxeldi hefur að lokum hrikalegar afleiðingar fyrir stofnana í ánum af því að í laxeldinu er notaður sérræktaður norskur lax sem er allt annarrar náttúru en villti íslenski laxinn. Sem dæmi um hve raunveruleg hættan er, þótt kvíarnar séu ekki við mynni laxveiðiánna, má nefna að þegar laxar sluppu úr kvíum í Norðfirði fyrir nokkrum árum voru þeir komnir upp í laxveiðiárnar frá Vopnafirði og suður í Breiðdal eftir fáeina daga. Reglan um að sá sem mengar eigi að borga fyrir skaðann er ekki í gildi á Íslandi; allur erfðaskaði mun falla á veiðiréttareigendur. Lyf sem notuð eru í laxeldi fara út í umhverfið og spilla því en safnast einnig upp í fiskinum ásamt krabbameinsvaldandi efnum úr laxafóðrinu, s.s. díoxíni, kadmíum, blýi, kvikasilfri, arseniki og ethoxyquin. Eldislax er því alls engin heilsufæða. Fólki er ráðlagt að takmarka neyslu hans, sérstaklega börnum og þunguðum konum. Þá eru ótalin vandamál við stjórnun og eftirlit með laxeldi. Eftirlit í Noregi er miklu umfangsmeira en hér á landi en þó er því ábótavant. Eldið er eina matvælaframleiðslan sem þarf ekki að þrífa eftir sig heldur er mengaður úrgangurinn látinn sitja eftir í náttúrunni. Jafnvel þótt Íslendingar vildu sætta sig við mengunina sem fylgir auknu laxeldi í sjó, á slóð villtra laxa og viðkvæmra skeldýra, þarf samt sem áður að setja upp stjórnkerfi og eftirlit, eins og um nýja landbúnaðarframleiðslu væri að ræða. Þetta kallar á milljarðafjárfestingu í innviðum, menntun og starfsþjálfun. Í dag sjá tvær stofnanir um eftirlitið en hjá hvorugri þeirra er það meginþáttur í starfseminni. Þá þarf að fylgjast með stjórnun í kvíunum, bátum og búnaði, fóðri, lyfjagjöf, lúsasmiti, slátrun o.fl.Laxeldi á landi Komin er fram ný tegund af laxeldi sem leyst gæti gamlar aðferðir af hólmi, þ.e. eldi í lokuðum flotkvíum í sjó eða í kerum á landi. NASF hvetur til þess að færa fiskeldi upp á land þar sem hægt er að stjórna ferlinu og nota ferskt vatn eða sjó sem má hreinsa í útrennslinu. Nýleg eldisstöð í Virginíuríki í Bandaríkjunum, sem byggir á þessari tækni, hefur sett fyrstu laxana á markað og telja talsmenn stöðvarinnar framleiðslukostnað sambærilegan við það sem best gerist í norsku sjókvíaeldi (sjá http://asf.ca/landbasedaquaculture.html). Kannski má spara markaðs- og flutningskostnað með fiskeldi í kerum á þurru landi nálægt stórborgum? Á Íslandi hefur keraeldi verið þróað um nokkurt skeið. Nefna má Íslandsbleikju Samherja, Stolt Sea Farm með Senegal-flúru og fleiri stöðvar. Þetta eru leiðandi fyrirtæki á alþjóðavísu. Óskandi væri að þau næðu að tryggja jafnvægi og sjálfbæra nýtingu lífríkisins, orðstír og forystu Íslands í vinnslu sjávargæða á norðurslóðum. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Valkyrjur: Ekki falla á prófinu! Gunnar Hólmsteinn Ársælsson Skoðun 13,5 milljónir Sigurður Freyr Sigurðarson Skoðun Upplýsingaóreiða og rannsóknir á mettaðri fitu Hópur lækna Skoðun Hvammsvirkjun og meintur orkuskortur Ólafur Páll Jónsson Skoðun Kóngar vímuefnaheimsins Lára G. Sigurðardóttir Skoðun Að vera léttvægur fundinn Guðmunda G. Guðmundsdóttir Skoðun Hvað með það þótt sérfræðingar að sunnan fari í verkfall? Silja Bára Ómarsdóttir Skoðun Rangfeðranir Sævar Þór Jónsson Skoðun Halldór 18.01.2025 Halldór Er heimurinn á leið til helvítis? Árni Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Rangfeðranir Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Valkyrjur: Ekki falla á prófinu! Gunnar Hólmsteinn Ársælsson skrifar Skoðun Hvammsvirkjun og meintur orkuskortur Ólafur Páll Jónsson skrifar Skoðun 13,5 milljónir Sigurður Freyr Sigurðarson skrifar Skoðun Að vera léttvægur fundinn Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Fögnum vopnahléi og krefjumst varanlegs friðar Svandís Svavarsdóttir,Guðmundur Ingi Guðbrandsson skrifar Skoðun Er heimurinn á leið til helvítis? Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Vinnum í lausnum Edda Sif Pind Aradóttir skrifar Skoðun Blað brotið í húsnæðismálum: VR Blær afhendir sínar fyrstu íbúðir Halla Gunnarsdóttir,Ragnar Þór Ingólfsson skrifar Skoðun Frelsi til sölu Anton Guðmundsson skrifar Skoðun Loftmengun yfir áramótin og mikilvægi inniloftsgæða allt árið Sylgja Dögg Sigurjónsdóttir,Árna Benediktsdóttir skrifar Skoðun Leikskólakerfið á krossgötum: Gæði eða hraði? Svava Björg Mörk skrifar Skoðun Hvað með það þótt sérfræðingar að sunnan fari í verkfall? Silja Bára Ómarsdóttir skrifar Skoðun Svar við „Upplýsingaóreiða og rannsóknir á mettaðri fitu“ Rajan Parrikar skrifar Skoðun Dýr eiga skilið samúð og umhyggju Anna Berg Samúelsdóttir skrifar Skoðun Upplýsingaóreiða og rannsóknir á mettaðri fitu Hópur lækna skrifar Skoðun Gervigreind og markþjálfun: Samvinna eða samkeppni? Ásta Guðrún Guðbrandsdóttir skrifar Skoðun Bjarni Ben í þátíð Guðmundur Einarsson skrifar Skoðun Ísland og stórveldin Reynir Böðvarsson skrifar Skoðun Brjóstakrabbamein – náum enn meiri árangri með stóraukinni þátttöku í skimun Halla Þorvaldsdóttir skrifar Skoðun Ósvífin olíugjöld kynda undir verðbólgu Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Eru skattar og gjöld verðmætasköpun? Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hvað er græni veggurinn að reyna að segja okkur? Bjarki Gunnar Halldórsson skrifar Skoðun Sorg barna - Sektarkennd og samviskubit Matthildur Bjarnadóttir skrifar Skoðun Í leikskóla er gaman – þegar það má mæta Valentina Tinganelli,Eyjólfur Sigurjónsson,Elísabet Erlendsdóttir,Sigrún Torfadóttir,Daniel Karlsson,Særún Ósk Böðvarsdóttir,Anna Margrét Arthúrsdóttir,,Una Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Ísland verði Noregur á sterum: Sannleikurinn er lyginni líkastur- náttúruauðlindir fást gefins Björn Ólafsson skrifar Skoðun Hvers vegna hafa Svíar ekki tekið upp evruna? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Górillur í postulínsbúð – Nýfrjálshyggjuklíkan tekur völdin Guðröður Atli Jónsson skrifar Skoðun Leikskólakerfið: Samfélagsgildi fram yfir hagnað Svava Björg Mörk skrifar Skoðun Hagræðing í ríkisrekstri: Heilræði fyrir nýja ríkisstjórn Ómar H. Kristmundsson skrifar Sjá meira
Skoðun Fögnum vopnahléi og krefjumst varanlegs friðar Svandís Svavarsdóttir,Guðmundur Ingi Guðbrandsson skrifar
Skoðun Blað brotið í húsnæðismálum: VR Blær afhendir sínar fyrstu íbúðir Halla Gunnarsdóttir,Ragnar Þór Ingólfsson skrifar
Skoðun Loftmengun yfir áramótin og mikilvægi inniloftsgæða allt árið Sylgja Dögg Sigurjónsdóttir,Árna Benediktsdóttir skrifar
Skoðun Brjóstakrabbamein – náum enn meiri árangri með stóraukinni þátttöku í skimun Halla Þorvaldsdóttir skrifar
Skoðun Í leikskóla er gaman – þegar það má mæta Valentina Tinganelli,Eyjólfur Sigurjónsson,Elísabet Erlendsdóttir,Sigrún Torfadóttir,Daniel Karlsson,Særún Ósk Böðvarsdóttir,Anna Margrét Arthúrsdóttir,,Una Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Ísland verði Noregur á sterum: Sannleikurinn er lyginni líkastur- náttúruauðlindir fást gefins Björn Ólafsson skrifar